Fréttasafn

  • Actavismót 5.flokks karla

    Nú er riðlakeppni Actavismóts Hauka í 5.flokki karla lokið. Allt hefur gengið mjög vel það sem af er móti, mótið hefur verið mikil skemmtun. Marga skemmtilega takta má sjá hjá handknattleiksmönnum framtíðarinnar. Í flokki A lið eru KA og HK komin áfram úr A riðli, FH og Fram úr B riðli, Haukar og Grótta úr…

  • Haukar-Valur mfl.kvenna

    Stelpurnar okkar urðu að játa sig sigraða er þær tóku á móti Val á Ásvöllum í kvöld. Lokatölur 30-34. Mikill hraði var í leiknum í byrjun og mörkin komu á færibandi. Jafnræði var með liðunum framan af en Valur náði 3ja marka forskoti undir lok fyrri hálfleiks 10-13 en smá barátta hjá Haukum skilað þeim…

  • Fjáröflun 4 fl. kk – leiðrétting

    FJÁRÖFLUN–Nú förum við aftur á stað með fjáröflun, Papco salernispappir 48 rúllur og eldhúspappir 24 rúllur á 2.000- hlutur drengjanna er 1.000-fyrir hverja pakkningu. Skila þarf inn pöntun í síðasta lagi 2.feb.afhending verður við vallarhúsið að Ásvöllum mánud.6.feb.á æfingatíma kl.18.30-19.30. ATH.Staðgreiða þarf vöru við afhendingu. Uppl:Líney s.555-2164 og Katrín s.565-0402. Kveðja Katrín.

  • Skákæfing 17.jan.

    1. Sverrir Þorgeirsson 8 af 8. 2. Varði 7 3-4. Snorri og Guðmundur 5 5. Stefán P. 3,5 6-8. Aui, Geir, og Kiddi 2 9. Sverrir Gunnarsson 1,5 Góður sigur hjá Sverri, sem lagði Varða öðru sinni í úrslitaskák í síðustu umferð! :o)

  • Foreldrafundur 6 fl. kk

    FORELDRAFUNDUR Foreldrafundur 6 fl. kk. verður haldinn fimmtudaginn 26.janúar kl. 18.00.-19.00. Fundarstaður er vallarhúsið á Ásvöllum (við gerfigrasvöllinn). Rætt verður um mótamál sumarins og fleira. Nauðsynlegt að ALLIR forldrar mæti. kveðja Siggi 840-4911

  • Risinn, æfingar hefjast.

    Komið þið sæl, Næsta æfing verður í Risanum á mánudaginn kl: 17:00-18:00. Risinn er knattspyrnuhús FHinga við Kaplakrika. Þar er kalt inni en við erum laus við snjó og rok. Komið því vel klæddir og með húfu. Æfingataflan verður því þannig fram á vor. Mánudagar Risinn kl: 17:00-18:00 Miðvikudagar Asvellir kl: 16:00-17:00 Laugardagar Víðistaðarskóli kl:…

  • Haukar-ÍBV mfl.kvenna

    Stelpurnar okkar mættu mjög vel stemmdar til leiks og unnu frábæran sigur 36-28 er þær tóku á móti ÍBV Ásvöllum í dag. Það var ljóst strax á fyrstu mínútum leiksins og stelpurnar okkar voru mættar til að sigra, tilbúnar að gefa allt í leikinn. Þær skoruðu fyrstu fimm mörkin og höfðu algjöra yfirburði yfir gestina….