Fréttasafn

  • Haukamenn í toppbaráttu SÞR

    Haukamenn verða í góðri æfingu fyrir Íslandsmót skákfélaga, ekki ber á öðru. Á Skákþingi Reykjavíkur rekur hver snilldin aðra. Stefán Freyr vann Björn Þorfinnsson nánast áreynslulaust, Varði tók fyrrv. Haukamanninn Benedikt Jónasson í bakaríið. Benni hefur greinilega látið á sjá síðan hann sneri aftur í TR, en er óstöðvandi á góðum degi. Stefán Freyr mátti…

  • FH-Haukar mfl.kvenna

    Stelpurnar okkar nældu í tvö stig með frábærum sigri á FH í Kaplakrika í dag. Lokatölur 22-24. Stelpurnar okkar byrjuðu herfilega, FH skoraði fyrstu fimm mörkin og staðan 5-0 og síðan 7-1 og 10-4 . Þá rumskuðu Haukastelpur aðeins og náðu að laga stöðuna fyrir leikhlé í 13-11. Síðari hálfleikur byrjaði svipað og sá fyrri….

  • Æfing 10.janúar

    Á æfingunni 10.janúar urðu Árni og Sverrir efstir og jafnir með 16,5 vinninga af 20 mögulegum. Toppbaráttan var jafnari en oft áður enda vantaði þá Varða og Heimi, sem eiga það til að skipa efstu sætin. Jón varð þriðji með 15 v. og Ingi fjórði með 14 v. Geir er allur að koma til og…

  • Uppfærð æfingatafla

    Æfingar allra flokka eru að sjálfsögðu komnar á fullt aftur eftir jólafrí. Einhverjar smávægilegar breytingar hafa orðið á æfingatöflunni sem foreldrar og iðkendur ættu að kynna sér. Æfingatafla yngri flokkanna hefur verið uppfærð og er hægt að skoða og hlaða niður hér í valmyndinni til hægri. Einhverra breytinga má þó vænta á næstu dögum á…

  • Fjáröflun 4. fl. kk vegna keppnisferðar

    Fjáröflun vegna keppnisferðar 4.fl. karla í knattspyrnu til Gautaborgar sumarið 2006 Pakki 1. Hreinsipakki. 500 ml. spreyflaska Greasan, frábært í eldhúsið(örbylgjuofn, kaffikönnur.) 500 ml. spreyflaska, Autologlo hreinsiefni fyrir bílinn. 500 ml. spreyflaska Elbow Grease (blettahreinsir, frábært alhliða hreinsiefni). Verð 2000 kr. pakkinn. Pakki 1. Hreinsipakki. YES uppþvottalögur 100 ml. YES Power Spray Þvottatöflur Verð 2000…

  • Keppnisferð 4. fl. kk í sumar

    Keppnisferð 4. flokks karla í knattspyrnu 16. – 22. júlí 2006 Ákveðið var á sameiginlegum fundi iðkenda, foreldra og forráðamanna 4. flokks karla í gærkvöldi, þann 10. janúar 2006, að farin yrði keppnis/skemmtiferð á stórmótið Gothia Cup í Svíþjóð í júlí í sumar. Með þeirri ákvörðun er verið að viðhalda áralangri hefð Hauka um þátttöku…

  • Skemmtikvöld Meistaraflokks Hauka!!

    Skemmtikvöld Meistarflokks Hauka fer fram laugardaginn 14.1 2006. Léttar veitingar og pizza í boði þangað til birgðir klárast. Aðgangseyrir aðeins 2.000 kr. Skemmtunin hefst kl. 20 og stendur yfir til kl. 2. Hefðbundin dagskrá. Hraðskákir og tvískák. Velunnarar Hauka velkomnir. Vinsamlegast tilkynnið þáttöku í netfangið aui@simnet.is eða skak@haukar.is

  • Séræfingar fyrir unglinga

    Nokkrar séræfingar hafa verið fyrir bestu ungu skákmenn félagsins og hafa þær verið haldnar á sunnudagskvöldum síðan í byrjun desember. Oftast er byrjað á að fara í byrjanir og eða endaöfl en svo er teflt. Á þessar æfingar hafa mætt þeir Sverrir Þorgeirsson, Kristján Ari Sigurðsson, Geir Guðbrandsson og Herbert Ingi Stefánsson, Auk þess hafa…