Frítt á leik Hauka og Vals

Í tilefni þess að frábæru Íslandsmóti er að ljúka vilja Haukar bjóða öllum, jafnt Haukamönnum sem Valsmönnum frítt á lokaleik deildarinnar þegar Valsmenn koma í heimsókn á sinn eigin heimavöll, Vodafonevöllinn á morgun laugardag kl 14:00.

Með þessu viljum við þakka öllum sem studdu okkur með ráðum og dáð og sérstaklega Valsmönnum sem af sönnum drengskap leyfði yngra systkyni sínu að leika á heimavelli sínum.

Við þökkum öllum fyrir frábært Íslandsmót og lítum við björtum augum til framtíðar. Strákarnir okkar hafa svo sannarlega verið sjálfum sér og félaginu til sóma og það eru stoltir Haukarar sem kveðja knattspyrnusumarið 2010.

Hlökkum til að spila á ný í deild þeirra bestu. Því þar eigum við svo sannarlega heima.

Áfram Haukar!