Fleiri leikmenn framlengja samninga sína

Í vikunni héldu Haukar áfram að semja við leikmenn, eins og áður var greint var búið að framlengja samninga við Hilmarana tvo, Hilmar Rafn Emilsson og Hilmar Geir Eiðsson.

Nú hafa þeir Ásgeir Þór Ingólfsson, Garðar Ingvar Geirsson og Úlfar Hrafn Pálsson einnig skrifað undir nýjan samning.

Ásgeir Ingólfsson skrifaði undir 3 ára samning sem gildir til 1.janúar 2011. Ásgeir er fæddur árið 1990 og á því mörg fótbolta árin ókláruð, hann leik 14 deildarleiki í sumar og skoraði í þeim leikjum 10 mörk, einnig lék hann 5 bikarleiki og skoraði 3 glæsimörk í þeim leikjum. Ásgeir lék fyrr í þessum mánuði 2 æfingarleiki með U19 ára landsliði Íslands í vináttulandsleik gegn Skotum en þar var hann að leika með jafnöldrum og leikmönnum sem eru einu ári eldri. Ásgeir var að ljúka sínu fyrsta ári í 2.flokki

Garðar I. Geirsson skrifaði undir 3 ára saming sem gildir til 1.janúar 2011. Garðar er fæddur árið 1988. Hann lék sitt fyrsta tímabil með meistaraflokki í fyrra þegar hann spilaði 3 deildarleiki og einn bikarleik. Í ár spilaði hann ögn meira eða 9 deildarleiki og 1 bikarleik. Garðar á enn eftir að skora sitt fyrsta mark fyrir meistaraflokk. Garðar var að ljúka sínu síðasta ári í 2.flokki.

Úlfar H. Pálsson skrifaði undir 3 ára saming sem gildir til 1.janúar 2011. Úlfar Hrafn er fæddur árið 1988. Hann lék sitt fyrsta tímabil með meistaraflokki í fyrra þegar hann spilaði 2 deildarleiki og 1 bikarleik. Í spilaði hann 18 deildarleiki og skoraði 1 mark, einnig spilaði hann 4 bikarleiki. Úlfar var lýkt og Garðar að ljúka sínu síðasta ári í 2.flokki.

Greinilega framtíðar leikmenn hér á ferð og verður skemmtilegt að fylgjast með þessum piltum leika lystir sínar í 1.deildinni á næsta ári.