2.flokkurinn áfram í B-riðli

Í kvöld tryggði 2.flokkur sér áframhaldandi þáttöku í B-riðli Íslandsmótsins. Þeir gerðu 1-1 jafntefli við Grindavík/Reynir, suður með sjó, en jafntefli dugði til að tryggja sér sæti í riðlinum, tap hefði liðið lent fallið og með sigri hefðið liðið getað náð 4.sæti. Það var Úlfar Hrafn Pálsson sem jafnaði leikinn í kvöld í seinni hálfleik eftir að Haukar höfðu lent undir á fyrstu mínútum leiksins.

B-riðillinn er gífurlega jafn, níu lið hófu keppni í B-riðli, þrjú lið falla í C-riðil og tvö lið fara upp í A-riðil. Ekki eru úrslitin enn ráðin á toppnum, en einn leikur er eftir í riðlinum, leikur Fjölnis og Grindavíkur/Reynir.

Þór frá Akureyri eru samt sem áður búnir að tryggja sér sæti í A-riðli á næsta ári, en sigri Fjölnir komast Fjölnir upp fyrir KA og því mundu þeir fylgja Þórsurum upp, með jafntefli eða tapi Fjölnis fer KA með nágrönnum sínum í A-riðil. Haukar voru einungis fjórum stigum frá efsta sætinu.

En ef við vindum okkur í botnbaráttuna þá voru Haukar aftur á móti einungis einu stigi frá falli.

Haukar léku 16 leiki í deildinni, þeir sigruðu 6, gerðu 4 jafntefli og töpuðu 6 leikjum. Strákarnir voru með 50% árangur á heimavelli, 4 sigrar og 4 töp, en þeir nældu sér í 12 stig á heimavelli. Á útivelli fengu þeir 10 stig, 2 sigrar, 4 jafntefli og 2 töp.

Í 2.flokki eru fjórir leikmenn sem leikið hafa með meistaraflokki í sumar, en það eru þeir, Andri Geir Gunnarsson, Ásgeir Þór Ingólfsson, Garðar Ingvar Geirsson og Úlfar Hrafn Pálsson

Þjálfari flokksins er Garðar Smári Gunnarsson, en hann er einnig aðstoðarþjálfari meistaraflokks.