Fjölnir – Haukar í Grafarvoginum í kvöld kl. 20:00

Ellen ÞóraHaukastúlkur leika sinn fimmta leik í 1. deildinni í kvöld þegar þær spila við Fjölni í Grafarvogi, og hefst leikurinn kl. 20:00. 

Bæði liðin eru jöfn að stigum í 2. og 3. sæti með 9 stig eftir 4 leiki.  Haukastúlkur spiluðu vel á Selfossi í síðasta leik en töpuðu engu að síður 1-0 með marki á lokamínútu leiksins.  Það er mikill hugur í Haukastúlkum að láta það ekki endurtaka sig og þær ætla sér sigur í leiknum við Fjölni í Grafarvogi. 

Við hvetjum stuðningsfólk Hauka til að mæta í Grafarvoginn og styðja Haukastúlkur til sigurs í leiknum.      

 

 

Munið: Í kvöld, föstudag, kl. 20:00, FJÖLNIR – HAUKAR.

ÁFRAM HAUKAR!