Fimm Haukastelpur í landsliðshópnum

Ágúst Björgvinsson, landsliðsþjálfari kvenna, valdi á dögunum 30 manna æfingahóp sem á að æfa um jólin. Í hópnum eiga Haukar fimm fulltrúa en þær Kristrún Sigurjónsdóttir, Ragna Margrét Brynjarsdóttir, Telma Fjalarsdóttir og Guðbjörg Sverrisdóttir eru í hópnum ásamt Helenu Sverrisdóttur en hún leikur með TCU háskólanum í Bandaríkjunum.

Hægt er að sjá allan hópinn hér.

Mynd: Frákastatröllið Telma Fjalarsdóttir er einn átta nýliða í landsliðshópnum – stefan@haukar.is