Búnar að vinna öll liðin

Haukar eru enn í efsta sæti Iceland Express-deildar kvenna eftir sigur í dag á liði Vals.

Haukar voru fyrir þennan leik búnar að leggja öll lið deildarinnar að velli nema Val. Sigurinn í dag var ekki fallegur en tvö stig í hús og toppsætið er Hauka.

Stigahæst hjá Haukum var Kristrún Sigurjónsdóttir en hún var með 21 stig og Slavica Dimovska var með 12 stig. Turnarnir tveir, Ragna Margrét Brynjarsdóttir og Telma Fjalarsdóttir, voru með átta stig og 22 fráköst samanlagt.

Tölfræði leiksins

Staðan í IE-deild kvenna

Mynd: Kristrún Sigurjónsdóttir var stigahæst Haukakvenna í dag en hún skoraði 21 stig. Hér setur hún tvö stig með Signýju Hermannsdóttur í andlitinustefan@haukar.is