Eitt stig úr leikjum helgarinnar

HaukarBáðir meistaraflokkar Hauka í knattspyrnu léku á laugardaginn sl. í 1.deildum karla og kvenna. Stelpurnar biðu lægri hlut fyrir Sindra á Hornafirði 0-2 en strákarnir héldu vestur á bóginn og mættu þar BÍ/Bolungarvík. Þeim leik lauk með markalausu jafntefli.

Haukastelpur eru í 6. sæti 1.deildar kvenna en strákarnir sitja í 4. sæti 1.deildar karla. Bæði lið eru eflaus svekkt með úrslitin og ætla sér betri hluti í sumar.

Því miður fyrir Haukafólk leika liðin samtímis næsta föstudag, stelpurnar fara í Árbæinn og mæta þar Fylki í Borgunarbikarkeppni kvenna en strákarnir taka á móti ÍR á Ásvöllum. Fólk verður því einfaldlega að flykkjast á völlinn í meira mæli en áður til að bæði lið fái þann stuðning sem þau eiga svo sannarlega skilinn!