Dagur Dan valinn í lokahóp U-17

haukar_midHauka-maðurinn Dagur Dan Þórhallsson hefur verið valinn í lokahóp U17 liðs karla til að taka þátt í æfingum sem undirbúning fyrir Norðurlandamótið 2016 sem fram fer dagana 2. – 10. ágúst.

Æfingarnar fara fram undir stjórn Halldórs Björnssonar, þjálfara U17 landsliðs Íslands.

Dagur Dan spilaði með U17 liðinu á UEFA móti í maí sl. og hefur m.a. verið í hópi í nokkrum leikjum meistaraflokks karla í sumar.

Til hamingju með valið Dagur Dan og gangi þér vel með U17!