Christopher Smith gengur til liðs við Hauka

 

Chris var ekki kominn með leikheimild gegn Fjölni í gær - karfan.is/tomaszHaukar hafa ákveðið að taka á reynslu Christopher Smith sem ætti ekki að vera landsmönnum alls ókunnugur. Smith hefur bæði leikið með liði Fjölnis (09-10) og með liði Njarðvíkur (10-11) og þekkir því deildina vel.

Smith lék 15 leiki í IE-deildinni á síðustu leiktíð og skoraði í þeim 20.9 stig að meðaltali og tók 8,1 frákast. Með Fjölni spilaði hann 22 leiki og var þá með 23,4 stig og 12 fráköst.

Hann er rétt um tveir metrar á hæð og fæddur 1982. Það er því ljóst að hann mun verða Haukum mikil hjálp undir körfunni og auka breidd liðsins.