Haukaliðin með sigra inn í bikarfrí

Nú er komið stutt frí á deildarkeppni meistaraflokka Hauka í handbolta vegna þess að um næstu helgi fer fram Final 4 í bikarnum. Því miður eru Haukaliðin ekki með í þetta skiptið og eru þau því á leið í stutt frí frá leikjum en öll liðin fóru á góðum nótum inn í fríið. Meistaraflokkur karla […]

Haukar halda í Garðabæinn

Það er stutt á milli leikja þessa daganna hjá meistaraflokki karla en í kvöld, fimmtudagskvöld, halda þeir í Garðabæinn þar sem þeir leika við Stjörnuna í Mýrinni kl. 20:00. Það eru allir leikir gríðarlega mikilvægir þessa stundina en fyrir leikinn eru Haukar í efsta sæti deildarinnar með 25 stig úr 16 leikjum en á eftir […]

Stelpurnar halda norður yfir heiðar

Meistaraflokkur kvenna í handbolta leggja land undir fót í dag þegar þær fara norður á Akureyri og leika þar við heimstúlkur í kvöld, þriðjudagskvöld. Leikurinn við KA/Þór hefst kl. 18:00 í KA heimilinu og má búast við hörkuleik en Haukastelpur er fyrir leikinn í 3. sæti deildarinnar með 21 stig eftir 16 leik á meðan […]

Grótta kemur í heimsókn

Meistaraflokkur karla í handbolta fær Gróttu í heimsókn í Schenkerhöllina á morgun, sunnudag, kl 16:30. Þetta er leikur í 16.umferð Olísdeildar karla en fyrir leikinn eru Haukar í 2. sæti deildarinnar á meðan Grótta er í 10. sæti það er því til mikils að vinna fyrir bæði lið í þeirri baráttu sem liðin eru í. […]

Ungu strákarnir halda í Austurberg

Strákarnir í U-liðinu eiga hörkuleik í kvöld, föstudagskvöld, þegar þeir heimsækja ÍR U í Austurberg kl. 20:30. Strákarnir hafa staðið sig glæsilega á tímabilinu og eru staðráðnir í að halda því áfram en fyrir leikinn eru þeir í 3. sæti deildarinnar með 15 stig eftir 12 leiki. Það er því um að gera að eyða […]

Stjarnan kemur í heimsókn í bikarnum

Það er komið að mikilvægasta leik tímabilsins hingað til þegar að Haukastelpurnar mæta Stjörnunni í 8-liða úrslitum Coca Cola bikarsins og er farseðill í Final 4 í boði. Leikurinn fer fram á morgun, þriðjudag, kl. 19:30 í Schenkerhöllinni og má búast við hörkuleik en liðin gerðu nýlega jafntefli í deildinni. Stjörnustúlkur hafa verið að sækja […]

Selfoss kemur í heimsókn

Það er komið að næsta leik hjá stelpunum í meistaraflokki kvenna í handbolta þegar að Selfoss kemur í heimsókn í Schenkerhöllina í Olís deild kvenna í kvöld kl. 19:30. Fyrir leikinn eru Haukastelpur í 3. sæti deildarinnar með 19 stig úr 15 umferðum og eru því í harðri baráttu á toppnum á meðan eru Selfoss […]

Aftur mæta Haukastúlkur Stjörnunni

Fyrir viku síðan mættust liðin í Garðabænum en nú er komið að því að liðin mætist í Schenkerhöllinni í fyrsta leik síðasta þriðjungs deildarinnar. Stelpurnar voru flottar í síðasta leik og hafa verið á góðu róli eftir áramót. Þær eiga því sannarlega skilið stuðning Haukafólks og því um að gera að fjölmenna í Schenkerhöllina á […]

Haukastelpur halda í Garðabæinn

Annar þriðjungur Olís deildar kvenna klárast á morgun þegar að stelpurnar okkar fara í Garðabæinn og etja kappi við Stjörnuna kl. 19:30 í TM Höllinni. Stelpurnar hafa verið flottar upp á síðkastið og fyrir umferðina eru þær í 3. sæti deildarinnar. Það er því um að gera að fjölmenna á leikinn. Áfram Haukar!

Selfoss mætir í Schenkerhöllina

Það er leikdagur hjá stelpunum í meistaraflokki kvenna en í kvöld fá þær Selfoss í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 19:30. Fyrir leikinn eru stelpurnar í 4. sæti Olís deildar kvenna með 14 stig og eru þær 5 stigum á eftir toppliðunum. Á meðan er Selfoss á botni deildarinnar með 4 stig og er í harðri […]