Kræklingaveisla fyrir evrópuleikinn á sunnudaginn
Í tilefni heimsóknar Saint-Raphael frá Frönsku Ríveríunni í Frakklandi verður slegið upp kræklingsveislu á Ásvöllum fyrir leikinn á sunnudag. Saint-Raphael er eitt öflugasta handknattleikslið sem komið hefur til landsins undanfarin ár og ætti enginn áhugamaður um hanknattleik að láta leikinn fram hjá sér fara. Herlegheitin hefjast kl 16.30 í veislusalnum á Ásvöllum og hefst leikurinn…
