Aðalfundur Almenningsíþróttadeildar
Aðalfundur Almenningsíþróttadeildar verður haldinn kl. 19:30 þriðjudaginn 2. febrúar í Forsal. Dagskrá samkvæmt lögum félagsins.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
fréttir
Aðalfundur Almenningsíþróttadeildar verður haldinn kl. 19:30 þriðjudaginn 2. febrúar í Forsal. Dagskrá samkvæmt lögum félagsins.
Haukafólk, við þurfum á ykkar stuðningi að halda!! Þetta gekk ekki allveg upp hjá strákunum okkar í landsliðinu, svo nú flykkjumst við á bak við stelpurnar okkar því stelpurnar í handboltanum mæta liði Vals í 16 liða úrslitumí Coca Cola bikarnum á miðvikudaginn 20. janúar. Haukastelpur hafa komist í höllina síðustu tvö árin og bæði…
Það ríkti spenna og eftirvænting þegar fjölmargir þátttakendur í Getraunaleik Hauka mættu á uppskeruhátíðina sem haldin var sl. laugardag og úrslit Haustleiksins voru kynnt. Hátíðinni stjórnaði Ágúst Sindri af festu og öryggi. Úrslit keppninnar urðu þessi: Úrvalsdeild: Í fyrsta sæti B.F. SEL með 47 stig, í öðru sæti Góu Haukar með 46 stig. Bárujárnsdeild: Í…
Vegna Actavis móts körfuknattleikdseildar Hauka á Ásvöllum þarf að færa leikjaskóla barnanna í íþróttahúsið við Strandgötu laugardaginn 16. janúar. ATH, sömu tímar verða, þ.e. að yngri krakkarnir verða kl. 9:30 – 10:15 og þeir eldri frá kl. 10:15 – 11:00
Fjölmenni var á þrettándagleði á Ásvöllum í Hafnarfirði í kvöld. Álfarnir létu sig ekki vanta enda brennan í hraunjaðrinum og stutt fyrir þá að skottast yfir. Skrautlegir álfar spígsporuðu í kringum brennurnar og Grýlu og Leppalúða tókst engan að hræða þótt þau hafi verið ófrýnileg að sjá. Yngsta kynslóðin og þær eldri skemmtu sér prýðilega…
Einhver óvissa hefur verið um hvort þrettandagleðin verði haldin vegna veðurs en nú er orðið ljóst að svo mun verða. Gleðilegt nýja árið! Jólin verða kvödd með dansi og söng á glæsilegri Þrettándagleði á Ásvöllum miðvikudaginn 6. janúar. Gleðin hefst stundvíslega kl. 18. Það er óhætt að segja að Haukar í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ ætli…
Á miðvikudaginn 6. janúar verður hin árlega Þrettándagleði haldin hér á Ásvöllum. Þar mun Helga Möller stíga á svið með hljómsveit, jólasveinninn kveður og álfar og tröll gera sig heimakomin. Frábær fjölskylduskemmtun sem hefst klukkan 18 og lýkur með glæsilegri flugeldasýningu klukkan 19. Veitingar verða seldar í Íþróttamiðstöðinni. Góða skemmtun
Á Gamlársdag var haldin hin árlega Viðurkenningahátíð Hauka þar sem besta íþróttafólk ársins var heiðrað og landsliðsfólk félagsins kynnt. Hátíðin hófst á ávarpi formanns félagsins, Samúels Guðmundssonar. Síðan voru kallaðir fram og kynntir allir þeir sem tekið hafa þátt í verkefnum hinna ýmsu landsliða Íslands í handbolta, fótbolta og körfubolta – samtals 92. Þá var…
Haukagetraunir senda öllum þátttakendum bestu jóla- og nýársóskir. Starfið á nýju ári hefst 16. janúar!
Hin árlega Viðurkenningahátíð Hauka verður haldin á Gamlársdag. Þar verður lýst kjöri Íþróttamanns, Íþróttakonu og Þjálfara ársins 2015. Auk þess fer fram kynning á landsliðsfólki félagsins. Hátíðin hefst kl. 12:30 í íþróttasalnum hér á Ásvöllum.