Gerfigrasið – takmörkuð opnun á morgun miðvikudag frá 15:00

Kæra Haukafólk,

Nú er langþráð stund að renna upp.

Verktakar eru að leggja lokahönd á frágang á nýjum og glæsilegum gerfigrasvelli Ásvöllum en við þurfum smá þolinmæði á síðustu metrunum.

GerfigrasNú er verið að ljúka við að setja undirlag í völlinn. Rétt er að taka fram að það undirlag uppfyllir allar öryggiskröfur.Þegar undirlagið er komið þá á bara eftir að setja upp keppnismörk.

Við höfum ákveðið að opna völlinn tímabundið fyrir æfingar frá og með morgundeginum, miðvikudaginn 18. nóvember. Æfingar hefjast kl. 15:00 samkvæmt æfingatöflu. Það þarf einsog ætlíð að ganga vel um völlinn og þjálfarar verða að ganga frá mörkum þannig að völlurinnsé alltaf auður. Gert er ráð fyrir að völlurinn verði að fullu tilbúinn fyrir aðra helgi.

Það verður tímabundin lokun á vellinum í einn til tvo daga þegar verið er að steypa undirstöður fyrir mörkin. Við viljum biðja þjálfara og iðkendur að virða þá lokun, og ekki fara á völlinn nema þá með sérstöku leyfi frá framkvæmdaaðilum.

Framkvæmdir við völlinn hafa gengið vel en óstöðugt veðurfar á Íslandi tafði verkið aðeins. Við

Hressir sjálfboðaliðar kl. 9 á sunnudagsmorgni.
Hressir sjálfboðaliðar kl. 9 á sunnudagsmorgni.

framkvæmdina hafa sjálfboðaliðar lagt umtalsvert að mörkum og okkur telst til að um 60-70 Haukafélagar hafi lagt þar hönd á plóg í um eitt þúsund vinnustundir í sjálfboðavinnu.

Það má fullyrða að fá félög hafi sambærilegan fjársjóð í félaginu sínu.

Ég vil fyrir hönd knattspyrnudeildar Hauka nota tækifærið og þakka iðkendum og aðstandendum þeirra fyrir þolinmæðina. Það hefur tekið á að bíða eftir æfingarvellinum okkar.

Þetta er okkur áminning um aðstöðuleysi iðkenda í Haukum. Því vil ég þakka núverandi meirihluta Sjálfstæðismanna og Bjartrar framtíðar fyrir að hefja loksins uppbyggingu á Ásvöllum. Það er þröngt í búi í rekstri sveitarfélagins, en það útskýrir ekki það sinnuleysi sem fyrri meirihluti sýndu Haukum.

með Haukakveðju

Ágúst Sindri Karlsson, formaður knd. Hauka.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa

    Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða konu í starf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjandi hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, sé reglusamur og tilgreini meðmælendur í umsókn. Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is

  • Golfmót Hauka

    Ágætu Haukafélagar. Haukamótið í golfi 2026 verður haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um tilhögun mótsins, skráningu ofl. verða sendar út síðar.

  • Andlátsfrétt

    Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann…