Haukar – Stjarnan í Dominos deild karla á miðvikudag

haukur óskarsÁ miðvikudag koma Stjörnumenn í heimsókn í Schenkerhöllina og munu etja kappi við sjóðaheita heimamenn í Dominos deildinni.

Haukarnir hafa verið að spila gríðarlega vel síðustu leiki og hafa unnið síðustu þrjá leiki með um 120 stigum, Snæfell á útivelli með 44 stigum í bikarnum, FSU á heimavelli með 16 stigum, eftir að hafa náð rúmlega 30 stiga forystu og svo vannst stórsigur á útivelli á móti ÍR í deildinni með 53 stigum.

Strákarnir hafa verið að spila einstaklega vel, vörnin hefur verið grimm og hafa andstæðingarnir átt í miklum vandræðum með að finna leið að körfunni og sóknin hefur verið hreifanleg og hittnin góð.

Nú reynir á liðið þar sem Stjörnumenn er með mun sterkara lið en síðustu andstæðingar. Stjörnumenn hafa tapað síðustu tveim viðureignum sínum og því er töluverð pressa á þeim fyrir þennan leik þar sem þeim var spáð mjög góðu gengi á þessu tímabili.

Haukarnir sitja í 3-5 sæti með 4 sigra og tvö töp en Stjarnan situr í 6-8 sæti með þrjá sigra og þrjú töp.

Það má búast við skemmtilegum og miklum baráttuleik í Schenkerhöllinni í kvöld kl. 19:15. Við hvetjum alla til að mæta snemma og gæða sér á gæða borgurum frá Gunna grillara.