Andlátsfrétt
Látinn er eftir erfið veikindi okkar góði félagi Árni Yngvi Hermannsson, 58 ára að aldri. Árni var virkur félagi í Haukum frá unga aldri, sonur Hermanns Þórðarsonar sem var forystumaður og formaður félagsins um margra ára skeið. Árni var afreksmaður bæði í knattspyrnu og handknattleik. Hans vettvangur var þó aðallega í handboltanum þar sem hann…
