Gleðileg Jól
Knattspyrnufélagið Haukar óskar ykkur öllum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári. Þökkum ánægjulegt og árangursríkt samstarf á árinu sem er að líða.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
fréttir
Knattspyrnufélagið Haukar óskar ykkur öllum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári. Þökkum ánægjulegt og árangursríkt samstarf á árinu sem er að líða.
Knattspyrnudeild Hauka hefur samið við þær Andreu Önnu Ingimarsdóttur, Ásdísi Ingu Magnúsdóttur og Helgu Ýr Kjartansdóttur. Allar gerðu þær tveggja ára samninga. Andrea Anna er uppalin hjá Haukum og kom við sögu í fimm leikjum Hauka í Pepsí deildinni sl. sumar og einum í Borgunarbikarnum en meiðsli settu strik í reikninginn. Þær Ásdís Inga og…
Hin árlega skötuveisla verður haldin á Þorláksmessu í Samkomusalnum. Kæst skata og saltfiskur ásamt meðlæti á hóflegu verði. Hefst kl. 12. Verð kr. 3000. Borðapantanir og miðasala í afgreiðslu – 525 8700 og bhg@haukar.is
Þriðjudaginn 5. desember verður haldinn Errea búningadagur á Ásvöllum þar sem knattspyrnuiðkendunum gefst tækifæri á því að máta og velja stærðina á sínum keppnisbúningi sem fylgir með æfingagjöldunum. Í ár fylgir blái varabúningur félagsins með, en sá þykir einstaklega vel heppnaður í útliti, og því munu Haukar verða bláir á keppnisvellinum á árinu 2018. Samtímis…
Boltaskóli Hauka byrjar á morgun, fimmtudaginn 9.nóv og verða tímarnir í Hraunvallaskóla kl 17:10-18:00. Þetta eru tímar fyrir iðkendur á aldrinum 4-5 ára, bæði stelpur og stráka þar sem farið er í allar boltaíþróttirnar. Þjálfari er Albert Magnússon.
Hildigunnur Ólafsdóttir hefur endurnýjað samning sinn við knattspyrnudeild Hauka og gildir nýr samningur til 31. desember 2019. Hildigunnur er 24 ára gömul og á að baki 83 leiki með meistaraflokki kvenna og hefur skorað 29 mörk. Hún lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki árið 2012 og er ein af reynslumeiri leikmönnum liðsins. „Hildigunnur hefur verið…
Knattspyrnudeild Hauka skrifaði í kvöld undir samninga við þær Dagrúnu Birtu Karlsdóttur og Katrínu Hönnu Hauksdóttur sem eru báðar uppaldar hjá félaginu og Regielly Oliveira Rodrigues sem kemur frá Sindra. Dagrún Birta er 18 ára gömul og á að baki 17 leiki með meistaraflokkum Hauka og Augnabliks en hún spilar jafnan sem varnarmaður. Katrín Hanna…
Sæunn Björnsdóttir hefur framlengt samning sinn við Knattspyrnudeild Hauka og gildir nýr samningur til 31. desember 2019. Sæunn sem verður 16 ára síðar í þessum mánuði hefur nú þegar spilað 39 leiki með meistaraflokki kvenna þrátt fyrir ungan aldur. Sæunn hefur verið valin efnilegasti leikmaður meistaraflokks kvenna síðustu tvö ár og fagnar knattspyrnudeild Hauka nýjum…
Knattspyrnudeild Hauka og Breiðablik hafa komist að samkomulagi þess efnis að Alexandra Jóhannsdóttir gangi til liðs við Breiðablik. Alexandra, sem er 17 ára gömul, lék 41 leik með meistaraflokki kvenna og skoraði hún átta mörk. Þá á hún á að baki 29 leiki með U17 og U19 ára landsliði Íslands. Þrátt fyrir að vera aðeins 17…