Samskokk í tilefni 10 ára afmælis Almenningsíþróttadeildar Hauka.

Skokkhópur Hauka heldur upp á 10 ára afmæli núna í september og því bjóðum við til samskokks með öllum þeim sem vilja gleðjast með okkur.

Dags: 16. sept.
Staðs: Ásvellir – Íþróttamiðstöð Hauka í Hafnarfirði
Tími: kl: 09:00
Hér þarf enga ofurhlaupagetu bara að geta glaðst í góðra vina hópi.
Hlaupaleiðir: Allir leggja af stað frá Ásvöllum á sama tíma.

FORSETI ÍSLANDS tekur á móti hópnum þegar hópurinn kemur skokkandi inn að Bessastöðum. (nánari tímasetning kynnt síðar)

Kaffiveitingar og dásemdarspjall að loknu hlaupi.

Frítt í Ásvallalaug að loknu hlaupi……………………………

ca. 6km – inn að Sundhöll og til baka.

ca.11,5km – Litli Garðaholtshringur, Inn að Garðaholti að Álftanesvegi, Hrafnista og þaðan til baka á Ásvelli.

ca.13,5km – Stóri Garðaholtshringur, Yfir Garðaholti að Álftanesvegi, Hrafnista og þaðan til baka á Ásvelli.

ca.16,5km – Bessastaðahringur, Yfir Garðaholtið að Bessastöðum og svo Álftanesveginn til baka.

ca. 20km – Álftaneshringur, Yfir Garðaholtið að Bessastöðum, hringinn um Álftanesið og svo Álftanesveginn til baka.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa

    Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða konu í starf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjandi hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, sé reglusamur og tilgreini meðmælendur í umsókn. Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is

  • Golfmót Hauka

    Ágætu Haukafélagar. Haukamótið í golfi 2026 verður haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um tilhögun mótsins, skráningu ofl. verða sendar út síðar.

  • Andlátsfrétt

    Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann…