Aðalfundur Handknattleiksdeildar Hauka 2020
Aðalfundur Handknattleiksdeildar Hauka verður haldinn þriðjudaginn 25. febrúar kl. 20:00 á 2. hæð. Dagskrá fundarins samkv. lögum félagsins. Stjórnin
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
fréttir
Aðalfundur Handknattleiksdeildar Hauka verður haldinn þriðjudaginn 25. febrúar kl. 20:00 á 2. hæð. Dagskrá fundarins samkv. lögum félagsins. Stjórnin
Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum hinn mikli veðurhamur sem gengið hefur yfir landið undanfarinn sólarhring. Oft er hér á Ásvöllum vindasamt og engin undantekning var á því nú í morgunsárið. Við erum hins vegar ánægð með að tjón á munum og mannvirkjum er ekki sjáanlegt utan þess að einn kúpull fauk af…
Aðalfundur Skákdeildar Hauka verður haldinn miðvikudaginn 19. febrúar kl. 18:00 í Guðsveinsstofu. Dagskrá samkvæmt lögum félagsins. Félagar eru hvattir til að mæta! Stjórnin.
Óliver Steinar Guðmundsson æfði í vikunni með U16 ára landsliði Íslands í knattspyrnu. Óliver er fæddur árið 2004 og er leikmaður í 3. flokki karla en hann er miðjumaður og skoraði 27 mörk í 16 leikjum á Íslandsmótinu í fyrra. Óliver á að baki tvo leiki með U15 ára landsliði Íslands. Vel gert Óliver!
Haukar bjóða upp á fótboltanámskeið fyrir krakka í 1.-4. bekk dagana 20. og 21. febrúar frá kl. 9-12. Námskeiðið fer fram á gervigrasinu á Ásvöllum (mæting í vallarhúsið). Þjálfarar frá Haukum kenna á námskeiðinu ásamt leikmönnum meistaraflokka. Áhersla er á fótbolta sem leik. Þátttakendur þurfa að hafa með sér hollt nesti og vera klæddir eftir…
Regielly Halldórsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Hauka sem gildir til næstu tveggja ára. Regielly, eða Leli eins og hún er jafnan kölluð, gekk til liðs við Hauka árið 2018 og hefur hún leikið 30 leiki með meistaraflokki og skorað níu mörk. Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagnar nýjum samningi við Leli og bindur miklar…
Mikaela Nótt Pétursdóttir hefur verið valin í leikmannahóp U17 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu til að leika tvo vináttuleiki við Írland. Leikið verður á Írlandi 14. og 16. febrúar n.k. Landsliðsþjálfari U17 kvenna er Jörundur Áki Sveinsson. Mikaela er fædd árið 2004 og er leikmaður í 3. flokki kvenna en hún spilaði þrjá leiki með…
Aðalfundur knattspyrnudeildar Hauka var haldinn sl. þriðjudag á Ásvöllum. Á fundinum fór Halldór Jón Garðarsson, formaður deildarinnar, yfir síðasta keppnistímabil og helstu markmið stjórnar fyrir árið 2020 en öll stjórnin bauð sig fram til endurkjörs. Þá fór Karl Guðmundsson, gjaldkeri deildarinnar, yfir rekstur meistaraflokka síðasta árs. Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fyrir árið 2020 er skipuð eftirtöldum…
Viktor Máni Róbertsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Hauka og kemur hann frá KV. Viktor Máni er fæddur árið 2000 og er miðjumaður. Byrjaði sinn knattspyrnuferil í Breiðabik en eftir það lá leiðin hans í vesturbæinn og spilaði hann þar með sterku 2.flokks liði KR/KV. Meistaraflokksferill Viktors Mána hófst með KV í fyrra…
1.febrúar 1990 komu nokkrir ungir piltar saman í Haukahúsinu við Flatahraun og stofnuðu Karatedeild Hauka. Hefur deildin vaxið og dafnað síðan og unnið til margra viðurkenninga. Karatedeildin hyggst fagna þessum tímamótum í hófi 29. febrúar. Núverandi formaður er Kristján Ó. Davíðsson.