Aðalfundur handknattleiksdeildar – Breyting
Áður auglýstur aðalfundur handknattleiksdeildar Hauka sem átti að vera 17. febrúar hefur verið frestað til þriðjudagsins 21. febrúar kl 19:30 í veislusal Hauka á Ásvöllum.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
fréttir
Áður auglýstur aðalfundur handknattleiksdeildar Hauka sem átti að vera 17. febrúar hefur verið frestað til þriðjudagsins 21. febrúar kl 19:30 í veislusal Hauka á Ásvöllum.
Dregið hefur verið í happdrætti Þorrablóts Hafnarfjarðar Óskum vinningshöfum til hamingju og geta þeir vitjað vinninganna á skrifstofu félagsins.
Það var dúndur stuð á Þorrablóti Hafnarfjarðar sem haldið var á Ásvöllum sl. laugardag. Vörpulegir víkingar tóku á móti veislugestum og Auddi og Steindi sáum svo um veislustjórn og kveiktu svo sannarlega upp í salnum. Íþróttasal sem strákarnir hjá HljóðX voru búnir að breyta í afar glæsilegan veislusal. Skemmtikraftarnir voru heldur ekki af verri endanum,…
Aðalfundur knattspyrnudeildar Hauka verður haldinn þriðjudaginn 14. febrúar nk. kl. 17.30 á Ásvöllum. Fer fundurinn fram í veislusal félagsins. Dagskrá fundar: 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara 2. Skýrsla stjórnar lögð fram 3. Kosið í stjórn 5. Önnur mál Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram og starfa í stjórn er bent á að…
Knattspyrnudeild Hauka hefur gert samning við markvörðinn Torfa Geir Halldórsson sem gildir út tímabilið 2024. Torfi Geir, sem er fæddur árið 2004, kemur til liðs við Hauka frá Breiðabliki þar sem hann hefur varið markið í sterkum 2. flokki félagsins. Torfi er uppalinn í Fram en hefur einnig leikið með yngri flokkum Vals. Torfi er…
Knattspyrnudeild Hauka hefur gengið frá lánssamningi við tvo unga og efnilega leikmenn sem koma báðir á Ásvelli frá Fylki í Bestu deildinni. Haukafólk ætti að kannast býsna vel við Hall Húna Þorsteinsson en hann lék upp yngri flokkana með Haukum áður en hann gekk í raðir Fylkis fyrir tveimur árum síðan. Hann lék einn leik…
Magnús Örn Helgason, landsliðsþjálfari U15 kvenna, valdi hóp fyrir úrtaksæfingar dagana 11.-13. janúar síðastliðinn. Elma Dís Ólafsdóttir leikmaður Hauka var valin í hópin og mætti á úrtaksæfingar sem fóru fram í Miðgarði í Garðabæ. Elma Dís getur spilað margar stöður á vellinum en finnur sig best á kanti eða frammi en getur einnig spilað á…
Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U16 ára landsliðsins hefur kallað saman hóp til æfinga dagana 30. Jan – 1. feb. Æfingarnar fara fram í Miðgarði í Garðabæ. Baldvin Már Víðisson, leikmaður 3. flokks karla, hefur verið valinn til að taka þátt í landsliðs æfingum U16 ára landsliðsins. Baldvin Már er fæddur árið 2007 og er á eldra…
Stelpurnar í meistaraflokki fá lið Stjörnunnar í heimsókn á Ásvelli á morgun, laugardag. Ljóst er að leikurinn verður erfiður en Stjörnustelpur hafa verið á mikilli siglingu síðustu vikur og standa nú í þriðja sæti Olísdeildarinnar. Okkar stelpur munu þurfa ÞINN stuðning í pöllunum! Leikurinn hefst kl. 18:00 og er eins og fyrr segir spilaður á…
Miðasala á tix.is HÉR! Þá er loksins komið að því að blóta Þorrann í Hafnarfirði. Þann 11. febrúar mun Þorrablót Hafnarfjarðar verða haldið á Ásvöllum í Hafnarfirði.Tryggðu þér miða á stór skemmtilegt kvöld með glæsilegri dagskrá og frábærum mat frá Múlakaffi. Boðið verður upp á bæði þorramat, lambakjöt og tilheyrandi ásamt vegan möguleika fyrir þá sem…