Úrslitakeppnin hefst á laugardag!

Fyrsti leikur strákanna okkar í handboltanum í úrslitakeppni N1-deildar karla fer fram á laugardaginn nk. kl.17:00 í Schenkerhöllinni á Ásvöllum. Mikil spenna og eftirvænting er í hópnum enda búið að vera langt hlé frá því að þeir spiluðu síðasta leik og fengu deildarmeistarabikarinn afhentan. Mótherjarnir eru bikarmeistarar ÍR og má því með sanni segja að […]

Vel heppnaðar handboltabúðir um páskana

Það var mikið fjör og gaman í handboltabúðum Hauka um páskana.  Þátttakan var góð og krakkarnir lögðu sig alla fram í að læra ný tækniatriði og skotafbrigði. Stelpurnar voru nokkuð margar og gáfu strákunum ekkert eftir. Það var einnig spennandi og skemmtilegt að fá gesti frá Þýskalandi en 23 drengir fæddir 2000 og 2001 frá […]

Minnum á leik Hauka og Vals

Við minnum á leik Hauka og Vals í úrslitakeppni N1-deilda kvenna sem fram fer á morgun í Schenkerhöllinni. Leikurinn hefst kl. 16.00 og er frítt inn! Liðin mættust í fyrsta leik einvígisins í gær og höfðu Valsstúlkur þar 28-19 sigur. Á morgun er hins vegar nýr leikur og með sigri tryggja Haukastelpur sér oddaleik á […]

Úrslitakeppni kvenna hefst í kvöld

Haukastelpur hefja leik í úrslitakeppni N1-deildar kvenna í kvöld kl.19:30 er þær halda til Reykjavíkur og mæta þar Valsstúlkum í Vodafonehöll þeirra Valsara. Óhætt er að segja að okkar stelpur séu að ráðast á fjall sem erfitt er að klífa en í íþróttum er ekkert ómögulegt og stelpurnar munu reyna sitt besta í kvöld, það […]

Landsliðsmenn á æfingu hjá Haukum í dag

Það verður fjölmennt á meistaraflokksæfingu hjá Haukum í handknattleik á eftir. Um óhefðbundna æfingu er að ræða, því margir fyrrum liðsmenn Hauka sem nú leika með íslenska landsliðsinu verða með á æfingu. Í dag klukkan 16:30 er æfing hjá meistaraflokki. Liðið undirbýr sig þessa dagana fyrir undanúrslita-einvígið gegn ÍR sem hefst í næstu viku.  Við erum […]

Aron Rafn í Guif

Haukar og Guif í Svíðþjóð hafa  gert samkomlag um félagsskipti Arons Rafns Eðvarðssonar til Svíþjóðar eftir yfirstandandi tímabil. Aron hefur gert þriggja ára samning við sænska liðið. Aron er einn af okkar efnilegustu markvörðum sem fram hfa komið á Íslandi og eru miklar vonir bundnar við hann sem mikinn afreksmanns í framtíðinni. Aron tekur með […]

Haukar og FH mætast í kvöld

Haukar taka á móti FH í síðustu umferð N1-deildar karla sem fram fer í kvöld. Leikið er í Schenkerhöllinni á Ásvöllum og hefst leikurinn kl.19:30. Leikurinn hefur í sjálfu sér enga þýðingu fyrir stöðu liðanna í deildinni, Haukar hafa þegar tryggt sér deildarameistaratitlinn og FH-ingar eru öryggir í öðru sæti deildarinnar. Hinn víðfrægi montréttur er […]

4.flokkur karla deildarmeistari

4.flokkur karla í handbolta tryggði sér í gær deildarmeistaratitlinn í sínum aldursflokki eftir sigur á Selfossi. Staðan fyrir leikinn var sú að Selfoss var í fyrsta sæti tveim stigum á undan Haukum sem voru í 2. sæti.   Selfoss hafði unnið fyrri leik liðanna með fimm marka mun og voru með betri heildarmarkatölu urðu því […]

Handboltabúðir Hauka 2013

Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari, og Hulda Bjarnadóttir, kennari, ætla að sjá um handboltabúðir Hauka þetta árið og fá þau góða hjálp frá leikmönnum meistaraflokka Hauka. Farið verður í undirstöðuatriði handboltans. Kennd verða ýmis skotafbrigði, gabbhreyfingar og leikatriði. Kunn andlit úr N1-deildinni koma í heimsókn. Allir fá vatnsbrúsa frá Íslandsbanka og Góa sér um  páskaeggin. Að venju […]