Haukar eiga 3 fulltrúa í U-15 ára landsliði kvenna í handbolta

Hrafnhildur Ósk Skúladóttir og Stefán Arnarson landsliðsþjálfarar u-15 ára landsliðs kvenna hafa valið 16 manna hóp sem mun fara til Skotlands helgina 14.-17. ágúst og taka þar þátt í æfingarmóti. 3 Haukastúlkur eru í hópnum en þær eru: Alexandra Jóhannsdóttir, Alexandra Líf Arnardóttir og Berta Rut Harðardóttir. Við óskum þeim til hamingju með þennan árangur. […]

Slástu í hópinn með okkur

Haukar í horni er stuðnings- og styrktarfélag Hauka. Einstaklingum og fyrirtækjum gefst báðum kostur á því að gerast meðlimir í Haukum í horni. Félagið var stofnað árið 1990 af handknattleiksdeild Hauka með það markmið að fjármagna komu tékkneska landsliðsmannsins Petr Baumruk til Hauka. Má segja að þetta framtak hafi hitt beint í mark. Bæði reyndist […]

Lokahóf handknattleiksdeildar verður haldið á morgun

Eins og allir vita þá enduðu strákarnir tímabilið með stæl í gærkvöldi með því að landa Íslandsmeistaratitlinum að Varmá. Liðið fór taplaust í gegnum úrslitin, unnu 8 leiki, og sópuðu FH, Val og Aftureldingu úr keppni. Annað kvöld, miðvikudag, ætlum við að gera okkur glaðan dag í veislusalnum okkar að Ásvöllum. Boðið verður upp á […]

Lokahóf yngri flokka handboltans á miðvikudaginn

Lokahóf yngri flokka handboltans verður haldið hátíðlegt miðvikudaginn 13. maí kl. 17:00 í íþróttasal Schenkerhallarinnar. Yngstu flokkarnir fá allir verðlaun fyrir góðan og skemmtilegan vetur en hjá eldri flokkum verða veitt einstaklingsverðlun. Meistaraflokkur kk. og kv. mun mæta á staðinn og hægt verður að sjá Íslandsmeistara bikarinn sem Haukar unnu á glæsilegan hátt í gær. […]

5 stúlkur valdnar í æfingahóp U15 hjá HSÍ

Búið er að velja 28 manna æfingahóp hjá U15 ára landsliði kvenna hjá HSÍ. Haukar eiga fimm fulltrúa í þessum hóp en eftir æfingar um næstu helgi mun verða valinn 16 manna lið sem mun fara til Skotlands helgina 14-17 ágúst og taka þar þátt í æfingamóti. Um næstu helgi munu þessi hópur spila tvo […]

Lyfta Haukar bikarnum í Mosó í kvöld?

Á föstudaginn fór fram leikur II í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Olísdeild karla. Haukar komu í leikinn fullir sjálfstrausts eftir góðan sigur á Aftureldingu í leik I í N1 höllinni. Haukar tóku snemma frumkvæðið í leiknum og með frábærri vörn og markvörslu höfðu gestirnir aðeins skorað 4 mörk eftir 25 mínútna leik en hálfleikstölur voru […]

Slæm umgengni eftir leikinn í Mosfellsbæ

Strákarnir gerðu góða ferð til Mosfellsbæjar í gærkvöldi og unnu þar flottan eins marks sigur í miklum spennuleik og náðu jafnframt forystu í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Olís deildinni. Hauka strákarnir sýndu mikla baráttu og voru félaginu okkar til sóma. Aftur á móti vantaði að einhverjir áhorfendur sem studdu okkar félag hafi ekki staðið sig […]

Haukar taka frumkvæðið

Meistaraflokkur karla spilaði í gær, miðvikudag, fyrsta leikinn í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn en mótherjinn var Afturelding. Þar sem Afturelding endaði ofar í deildarkeppninni þá eru þeir með heimaleikjarétttin í rimmunni og því var fyrsti leikur liðann háður á heimavelli Aftureldingar að Varmá. Haukamenn mættu grimmir til leiks og ekki að sá á þeim að 2 […]