Slástu í hópinn með okkur

Haukar logo fréttirHaukar í horni er stuðnings- og styrktarfélag Hauka. Einstaklingum og fyrirtækjum gefst báðum kostur á því að gerast meðlimir í Haukum í horni. Félagið var stofnað árið 1990 af handknattleiksdeild Hauka með það markmið að fjármagna komu tékkneska landsliðsmannsins Petr Baumruk til Hauka. Má segja að þetta framtak hafi hitt beint í mark. Bæði reyndist Baumruk okkur góður og mikilvægur leikmaður og fyrirmyndar félagi. Einnig hefur myndast góður félagsskapur og mikil stemning í kringum Hauka í horni. Stuðnings- og styrktarfélagið er þvi orðið hornsteinn í starfi Hauka.

Handknattleiks-, knattspyrnu- og körfuknattleiksdeildirnar hafa nú tekið höndum saman um rekstur meistaraflokkana. Meistaraflokkar félagsins verða því framvegis reknir saman undir Rekstrarfélagi Hauka.  Ákveðnum hluta af tekjum Hauka í horni er ráðstafað til barna og unglingastarfs félagsins með kaupum á boltum, búningum og öðrum búnaði.

Það eru mikil gleðitíðindi fyrir okkur Haukafólk að við séum að sameinast undir einum hatti og verður hið sterka stuðnings- og styrktarfélag Haukar í horni því félagið okkar allra!

Það sem er innifalið í pakkanum Haukar í horni

Haukar í horni – Gullfélagi

  • Ársmiði á alla deildarleiki Hauka í meistaraflokki karla og kvenna(fótbolti, handbolti og körfubolti). Gildir ekki á bikarleiki, evrópuleiki og oddaleiki í úrslitakeppni
  • Merkt sæti í stúkunni (inni eða úti) eða skófar á gólfi
  • Aðgangur að VIP herbergi á leikdag hjá öllum deildum
  • Léttar veitingar á leikdag i VIP herbergi
  • Þjálfarateymið leggur línurnar fyrir leik og fer yfir stöðuna í hálfleik
  • Reglulegur tölvupóstur með stórum og smáum fréttum um meistaraflokkana og starfið
  • Verð: 3.550 krónur á mánuði í 12 mánuði á ári. Hjón: 5.900 krónur á mánuði í 12 mánuði á ári

Haukar í horni – Silfurfélagi

  • Ársmiði á alla deildarleiki Hauka í meistaraflokkikarla og kvenna(fótbolti, handbolti og körfubolti). Gildir ekki á bikarleiki, evrópuleiki og oddaleiki í úrslitakeppni
  • Aðgangur að VIP herbergi á leikdag hjá öllum deildum
  • Léttar veitingar á leikdag i VIP herbergi
  • Þjálfarateymið leggur línurnar fyrir leik og fer yfir stöðuna í hálfleik
  • Reglulegur tölvupóstur með stórum og smáum fréttum um meistaraflokkana og starfið
  • Verð 2.750 krónur á mánuði á ári. Hjón: 4.400 krónur á mánuði í 12 mánuði á ári

Hægt er að skrá sig í síma 525 8700 eða með því að senda póst á innkaup@haukar.is