Æfingatafla hkd. Hauka er tilbúin
Æfingataflan fyrir handknattleiksdeild Hauka er tilbúin fyrir veturinn 2017-2018. ATH. að taflan tekur gildi mánudaginn 28. ágúst.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr handboltanum
Æfingataflan fyrir handknattleiksdeild Hauka er tilbúin fyrir veturinn 2017-2018. ATH. að taflan tekur gildi mánudaginn 28. ágúst.
Uppskeruhátíð yngri flokka handknattleiksdeildar Hauka var haldinn á Ásvöllum föstudaginn 19 maí. Voru það bæði stelpur og strákar úr 8. – 3. flokki sem komu saman. Farið var yfir veturinn sem var mjög árangursríkur hjá yngri flokkum, bæði hvað varðar iðkendafjölda og keppni. Til Íslandsmeistara unnu 5. fl. kvenna, 6. fl. karla og 3. fl….
Glæsilegt lokahóf Handknattleiksdeildar var haldið sl. föstudag í fullum Samkomusal. Góður andi ríkti á samkomunni með lystugum mat og dillandi tónlist. Viðurkenningar veittar fyrir frábær störf og góðan árangur. Ánægðir kvöddu samkomugestir veturinn og héldu út í milda vornóttina.
Strákarnir í 3.flokki leika til úrslita Íslandsmótsins við Val kl. 19:00 í Fylkishöllinni. Við hvetjum alla Haukamenn til að mæta og styðja strákana til sigurs!
6. fl. karla eldri Íslandsmeistari 2017 Annar Íslandsmeistaratitill er kominn í hús því strákarnir í 6.fl. karla eldri tryggðu sér rétt í þessu Íslandsmeistaratitilinn með góðum árángri á síðasta mótinu. Strákarnir náðu 2. sætinu um helgina og það tryggði þeim Íslandsmeistaratitilinn. Við óskum Óliver og strákunum öllum innilega til hamingju með glæsilegan árangur í vetur!…
5.fl. kvenna eldri Íslandsmeistarar 2017 Stelpurnar í 5.fl. kvenna eldri stóðu sig frábærlega um helgina og unnu þrjá leiki og gerðu 1 jafntefli. Með þessum frábæra árangri urðu þær Íslands- og deildarmeistari í efstu deild. Reyndar voru þær búnar að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn frá síðasta móti en þetta var fjórða mótið í röð sem þær…
Lokahóf handknattleiksdeildar Hauka 2017 # 12. maí Asvellir húsið opnar kl 1930 # Verð kr 2,017,00 # Lambalæri að hætti “RÓ og Næði” # Miðasala í afgreiðslu Ásvalla frá 9. maí # Diskótek og heimatilbúin skemmtiatriði.
Lykilleikmenn framlengja við Hauka Það eru þeir Tjörvi Þorgeirsson, leikstjórnandi, Jón Þorbjörn Jóhannsson og Heimir Óli Heimisson, línumenn og varnarjaxlar, Grétar Ari Guðjónsson og Andri Scheving, markverðir, sem hafa allir skrifað undir nýja samninga við Hauka.
Það er allt eða ekkert hjá stelpunum á þriðjudaginn í Safamýrinni. Stelpurnar hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum naumlega og þær ætla sér sigur á þriðjudaginn. Það munu berjast til síðasta mans og þurfa þinn stuðning! Mætum og styðjum stelpurnar til sigurs!
Eftir svekkjandi tap í fyrsta leik mætast liðin öðru sinni í Schenkerhöllinni á sunnudaginn kl. 16:00. Stelpurnar ætlar sér sigur og ekkert annað og þær þurfa þinn stuðning á sunnudaginn. Mætum öll og hvetjum stelpurnar til sigurs! Áfram Haukar!