Tveir öruggir sigrar í gær

Í gær fóru fram tveir leikir á Ásvöllum. Leikur Hauka og Fylkis í N1-deild kvenna og leikur Hauka og Þróttar í 1.deild karla. Haukar fóru með öruggan sigur í báðum leikjum. Kvennaleikurinn byrjaði jafn og spennandi en þó leiddu Haukar leikinn. Það var svo ekki fyrr en rúmlega 10 mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum […]

Haukar – Fylkir N1 deild kvenna

Á morgun, laugardag, mæta stelpurnar í meistaraflokki liði Stjörnunnar í N1 deild kvenna. Leikurinn fer fram á Ásvöllum og hefst klukkan 16:00. Af óviðráðanlegum aðstæðum verður ekki barnahorn á leiknum.  Haukastelpurnar hafa unnið tvo leiki af þremur í N1 deildinni í vetur og eru eins og stendur í 3. sæti ásamt Val og FH. Stjarnan […]

SG Flensburg-Handewitt – Haukar bein lýsing

Eftir skammastund hefst leikur SG Flensburg-Handewitt og Hauka í Meistaradeild Evrópu en leikið er í Flensburg. Leikur hefst klukkan 20:00 að staðartíma eða 18:00 að íslenskum tíma. Fjöldi Haukamanna eru í stúkunni og fáum við tölur mjög reglulega frá þeim og birtum hér á heimasíðunni. Strax eftir leikinn mun síðan umfjöllun um leikinn vera skrifuð […]

Ekki í fyrsta sinn sem Haukar mæta þýsku liði

Strákarnir í meistaraflokki karla eru nú staddir í Þýskalandi þar sem þeir mæta liði Flensburgar í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 18:00 að íslenskum tíma, 20:00 að þýskum tíma, og verður leikurinn sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Eurosport 2. Einnig munum við fylgjast með leiknum hér á www.haukar.is en við þar sem tæknin í dag er hreint […]

Fjöldi Haukafólks á leið til Flensburgar

Búist er við um 30 – 40 Haukafólki í pöllunum í Flensburg í kvöld þegar strákarnir í meistaraflokki leika gegn liði SG Flensburg-Handewitt í íþróttahöllinni í Flensburg. Leikurinn hefst klukkan 18:00 að íslenskum tíma og eins og áður hefur komið fram í beinni útsendingu á Eurosport 2. Fjöldi Haukamanna er nú á leiðinni með flugum […]

Hvað segja leikmenn Hauka ? Flensburg á fimmtudaginn

Á fimmtudaginn nætkomandi heimsækir meistaraflokkur Hauka í handknattleik stórlið Flensburgar frá Þýskalandi. En leikurinn er liður í 2. umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Haukar sigruðu fyrsta leikinn sinn í riðlinum með einu marki en Flensburg töpuðu hinsvegar fyrsta leiknum sínum í riðlinum gegn Vezprém 29-28. Fjölmargir Haukamenn ætla að leggja land undir fót og styðja Hauka strákana […]

Styttist í leik númer tvö í Meistaradeildinni

Nú eru aðeins tveir dagar í að Haukar í meistaraflokki karla í handbolta leika sinn annan leik í Meistaradeild Evrópu. Þeir sigruðu á sunnudaginn lið ZTR Zaporozhye frá Úkraníu með rosalegri baráttu á síðustu mínútunum síðastliðinn sunnudag og nú er komið að stór liði Flensburg. Leikurinn fer fram í Flensburg á fimmtudaginn og verður í […]

SG Flensburg-Handewitt – Hverjir eru það?

Eins og fram hefur komið á heimasíðunni mæta strákarnir í meistaraflokki karla liði SG Flensburg-Handewitt í öðrum leik sínum í Meistaradeild Evrópu. Leikurinn fer fram í Flensburg á fimmtudagskvöldið og hefst klukkan 18:00 að íslenskum tíma. Um sannkallað stórlið er að ræða sem leikið hefur til úrslita í Evrópukeppnum 8 sinnum á síðustu árum. Liðið […]

Haukar U og 2 úr leik í bikarnum

Í gærkvöldi léku tvö Hauka lið í 32 – liða úrslitum Eimskipsbikarnum.  Haukar U spilaði á Seltjarnarnesi gegn Gróttu 2. Haukar voru yfir í hálfleik en að lokum fór svo að Grótta fór með sigur af hólmi. Á Ásvöllum mætti Haukar 2 1.deildarliði Selfossar. Ekki var eins góð mæting hjá liðsmönnum Hauka 2 eins og […]

Hvað segja leikmenn Hauka ? – Eftir leikinn í gær

Eins og greint var hér á síðunni í gær, sigruðu Haukar fyrsta leik sinn í Meistaradeild Evrópu í gær gegn ZTR Zaporozhye. Haukar fóru með eins marks sigur af hólmi. Við fengum nokkra leikmenn Hauka til að lýsa því, hvernig stemming var eftir leikinn í gær og hvað þeim fannst um leikinn. Við fengum þá, […]