Sigur á Val í Ragnarsmótinu

Haukar spiluðu við Val í Ragnarsmótinu í gær. Lokatölur voru 23-17 fyrir Hauka. Haukar voru betri aðilinn og má segja að þetta hafi verið öruggur sigur allan tímann. Liðheildin var góð og voru okkar menn að spila frábæra vörn og einnig var markvarslan frábær.  Þar með hafa Haukar tryggt sér réttinn til að keppa til […]

Ágætis byrjun á Ragnarsmótinu

Haukar léku sinn fyrsta leik i Ragnarsmótinu í gær gegn Fram. Þetta var ágætis leikur þar sem strákarnir okkar höfðu yfirhöndina allan tímann og endaði leikurinn 31-24. Birkir Ívar lék ekki með vegna veikinda. Aron Rafn varði 15 bolta. Markaskorarar voru: Björgvin Þór 5(1) Gísli Jón 4 Guðmundur Árni 4(3) Einar Örn 4 Þórður Rafn […]

Ragnarsmótið í handbolta

Handboltavertíðin hefst formlega á morgun miðvikudaginn 1. September með Ragnarsmótinu á Selfossi. Mótið er haldið til minningar um Ragnar Hjálmtýsson sem lést langt fyrir aldur fram í bílslysi fyrir nokkrum árum. Við munum spila í riðli með Fram og Val. Frítt er á alla leiki! Nánari upplýsingar á www.umfs.is  Miðvikudag 1.sept kl 20 leikum við gegn Val […]

Handboltinn byrjaður

Mfl. karla í handbolta hóf undirbúningstímabilið sitt síðasta þriðjudag með nýjum þjálfara, Halldóri Ingólfssyni, en áætlað er að Íslandsmótið hefjist 30. september. Eru allir leikmenn mættir nema Stefán Rafn, Heimir Óli og Guðmundur Árni sem eru í Slóvakíu með u-20 landsliðinu. Fer mfl. á mót í Svíþjóð 18. ágúst til fyrrum félaga okkar og leikmanns […]

EM undir 20 ára

Við viljum hvetja ykkur til að fylgjast með strákunum okkar í Slóvakíu á EM undir 20. Okkar menn lögðu gestgjafa Slóvaka örugglega í gær og áttu okkar menn stórleik. Guðmundur Árni markahæstur. Hægt er að fylgjast með keppninni í vefsjónvarpi. Slóðin er þessi:http://www.ehf-20euro2010.com/en/live-stream/live-stream-pasienky

EHF drátturinn í handbolta

Mótherjar okkar í fyrstu umferð Evrópukeppninnar í handbolta nú í vetur verður Ítalska liðið H.C. Conversano. Við höfum mætt þessu liði tvisvar áður, í Evrópukeppni bikarhafa árið 2002 gerðum við 27-27 jafntefli á Ítalíu en unnum þá hér heima 26-18. Einnig spiluðum við þá tímabilið 2006 -7 og töpuðum þá útileiknum 32-31 og unnum þá […]

Þrjár Hauka hetjur á leið á Evrópumeistaramótið U20 í Slóvakíu.

Um næstu mánaðarmót hefst Evrópumeistaramótið í Slóvakíu.  Einar Guðmundsson og Einar Andri Einarsson þjálfarar U-20 árs landsliðs Íslands hafa valið 16 manna  hóp og skal það ekki koma neinum á óvart að Haukar eiga þrjá sterka fulltrúa í hópnum.   Leikmennirnir úr Haukum sem valdir hafa verið í hópinn eru þeir Heimir Óli Heimisson (línumaður) […]

Áfram stelpur!!

Á dögunum var gerður tímamóta samningur við uppalda yngri leikmenn handknattleiksdeildar. Samningurinn er til þriggja ára þar sem leikmenn og félagið sameina markmið sín. Það er ánægjulegt og á sama tíma óvenjulegt að félag skili af sér svo mörgum og sterkum leikmönnum upp í meistaraflokk. Þeir leikmenn sem samið var við að þessu sinni eru […]

Tveir leikmenn Hauka í U-18 landsliðið

U-18 landslið Íslands í handknattleik (fyrir leikmann fædda 1992 og 1993) er á leið til Svíþjóðar í byrjun næsta mánaðar til taka þátt í opna Evrópumeistaramótinu. Sextán leikmenn hafa verið valdir til að taka þátt fyrir Íslands hönd og erum við Haukamenn stoltir af því að eiga tvo fulltrúa í hópnum. Þær eru Viktoría Valdimarsdóttir […]