Leik Hauka og FH í N1-deild karla var að ljúka rétt í þessu með 26-20 sigri gestana úr FH. Fyrri hálfleikur var mjög jafn og var staðan 10-10 í hálfleik. Framan af síðari hálfleik virtist það sama ætla að verða upp á teningnum en í stöðunni 15-15 þegar um 20 mín voru eftir hrökk allt […]
Eftir góðan sigur á FH fyrir stuttu var okkar stelpum í meistaraflokki kvenna í handbolta kippt snögglega niður á jörðina þegar þær heimsóttu Gróttu á Seltjarnarnes og biðu þar lægri hlut 19-24. Leikurinn var báðum liðum mjög mikilvægur í baráttunni um 6. sæti deildarinnar sem er jafnframt síðasta sætið sem gefur þátttökurétt í úrslitakeppninni um […]
Þessa fimmtudagskvölds verður ekki minnst lengi í hugum Haukafólks því við töpuðum leikjum okkar í bæði handboltanum og körfuboltanum. Handboltastrákarnir léku sem kunnugt er við Val og náðu sér aldrei á strik í þeim leik. Uppskeran var eftir því, tap 18-25 og ljóst að liðið getur mun betur. Markahæstu menn Hauka í leiknum voru Freyr […]
N1-deildin í handbolta hefst á nýjan leik í kvöld eftir langt hlé vegna Evrópukeppninar í handbolta. Strákarnir okkar eiga leik gegn Val og fer hann fram í Vodafonehöllinni á Hlíðarenda kl.19.30. Af leikmannahópnum er allt gott að frétta, engin á við meiðsl að stríða og allir hafa strákarnir æft vel í hléinu. Haukar hafa tvisvar […]
Haukastelpur unnu góðan sigur á FH-stúlkum í N1-deild kvenna á laugardaginn, leikurinn fór fram í Schenkerhöllinni á Ásvöllum. Stelpurnar okkar voru sterkari frá upphafi til enda en tókst þó ekki að hrista FH almennilega af sér fyrr en í síðari hálfleik. Í hálfleik var fjögurra marka munur á liðunum 16-12 en í síðari hálfleik jókst […]
Haukar og FH mætast á morgun, laugardag í N1-deild kvenna í handbolta kl.16:00 í Schenckerhöllinni að Ásvöllum. Leikurinn er báðum liðum mikilvægur í baráttunni um sæti í 6-liða úrslitakeppni sem fram fer í vor og auðvitað er hann einnig mikilvægur að því leiti að hér er að sjálfsögðu um að ræða nágrannaslag af bestu gerð […]
Í dag var dregið til undanúrslita í Eimskipsbikarkeppni karla í handbolta og fáum við Haukar nágranna okkar í FH í heimsókn í Schenckerhöllina að Ásvöllum. Áætlað er að spila leikinn þann 13.febrúar næst komandi. Fjórum dögum fyrr, 9. febrúar fáum við FH-inga hins vegar í heimsókn í N1-deildinni þannig að tveir Hafnarfjarðarslagir eru framundan hjá […]
Aron Rafn Eðvarðson markmaður meistaraflokks Hauka í handbolta hefur verið kallaður inn í landsliðið sem leikur þessa stundina á Evrópumeistaramótinu í Serbíu. Aron kemur inn í liðið í stað Hreiðars Leví Guðmundssonar en markvarsla liðsins hefur ekki verið nægilega góð og á Aron að koma inn í liðið með nýtt blóð. Aron á að baki […]