Haukagetraunir – 1×2
Í ljósi aðstæðna hefur verið ákveðið að fresta getraunastarfseminni til 3. apríl. Nánar tilkynnt síðar.
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir af getraunastarfi
Í ljósi aðstæðna hefur verið ákveðið að fresta getraunastarfseminni til 3. apríl. Nánar tilkynnt síðar.
Á laugardaginn hefst Vorleikur Haukagetrauna. Spilaðar verða 15 umferðir. Veglegir vinningar. Allir velkomnir. Kaffiveitingar. Hefst kl. 10:30.
Það var glatt á hjalla hjá getraunaspekingum félagsins á laugardaginn þegar þeir fögnuðu 50 ára afmæli Sigurðar Frímanns Meyvatnssonar. Sigurður er einn helsti sparkfræðingur félagsins og hefur eitt hæsta meðalskor í getraunum innan félagsins. Félagið óskar Sigurði til hamingju með stórafmælið. Lifðu heill !
Það var stór dagur hjá Haukagetraunum á laugardaginn þegar 4 lið náðu fullu húsi eða 13 réttum. Þessi árangur árangur er einstakur, en mikil gróska hefur verið í starfseminni í haust. Leikið er á laugardögum frá kl 10 til 12:30 og eru allir velkomnir.
Laugardaginn 14. september hefst getraunastarf félagsins međ kynningarfundi sem hefst kl. 11 í sal getrauna á 2. hæð hér á Ásvöllum – Stefánssal. Þar fer fram kynning á leiknum og skráning. Allir velkomnir – veitingar í boði ! Stjórnin
Það var þétt setinn bekkurinn á lokahófi Haukagetrauna á sunnudaginn. Formaður mótanefndar, Ágúst Sindri, stjórnaði athöfninni sem fór hið besta fram. 1.verðlaun hlaut STEINN – Gissur Guðmundsson, 2. verðlaun VALENCIA – Magnús Gunnarsson og LUNDI hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir flestar unnar umferðir – Elías Atlason og Þórður Jón. Glæsilegt hlaðborð var í boði Knattspyrnudeildar.
Lokahóf Haukagetrauna verður haldið nk. sunnudag kl. 13:30 í Samkomusalnum. Verðlaunaafhending og léttar veitingar. Leikur hjá meistaraflokk kvenna í fótbolta kl. 14.
Lokaumferð Haukagetrauna var leikin á laugardaginn. Sigurvegari keppninnar var liðið STEINN með 160 stig, Valencia var í öðru sæti með 157 stig. Alls voru leiknar 18 umferðir og þátttökulið um 30. Flestar umferðir vann Lundi eða 5. Uppskeru- og verðlaunaafhending verða auglýst síðar. Mótanefndin þakkar þátttakendum og styrktaraðilum samstarfið í vetur.
Liðið HIST sem spilar í Haukagetraunum gerði sér lítið fyrir og var með fullt hús eða 13. rétta í síðustu umferð getrauna. Ekki er vitað á þessari stundu um verðlaunaféð en það er trúnaðarmál amk. fyrst um sinn. Haukagetraunir senda HIST hamingjuóskir í tilefni þessa árangur.
Það var vel mætt á verðlaunahátíð Haukagetrauna á laugardaginn síðastliðinn. Hátíðinni stjórnaði formaður mótanefndar og í snjallri ræður rakti hann sögu Haukagetrauna sem eflst hafa með ári hverju. Glæsilegt veisluborð var síðan boði stjórnar.