Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Hauka
Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Hauka verður haldinn mánudaginn 11. maí kl. 17:00 í Samkomusal félagsins að Ásvöllum. Dagskrá fundar samkvæmt lögum félagsins. Félagar hvattir til að mæta! Stjórnin
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir af getraunastarfi
Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Hauka verður haldinn mánudaginn 11. maí kl. 17:00 í Samkomusal félagsins að Ásvöllum. Dagskrá fundar samkvæmt lögum félagsins. Félagar hvattir til að mæta! Stjórnin
Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við 95 ára afmæli félagsins okkar. Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og 15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar. Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum í sögu félagsins. Við erum stolt af félaginu okkar. Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…
Tilkynning frá Knattspyrnufélaginu Haukum til foreldra og forráðamanna barna sem iðka íþróttir á Ásvöllum sem og allra þeirra sem erindi eiga á svæði félagsins. Við höfum verulegar áhyggjur af þeirri gríðarlegu umferð sem jafnan er á Ásvöllum og erum stöðugt að leita leiða til að tryggja öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi. Við viljum því…
Á viðurkenningahátíð Hauka sem haldin var í dag var Þóra Kristín Jónsdóttir valin íþróttakona Hauka 2025, Aron Rafn Eðvarðsson, íþróttamaður Hauka og Emil Barja, þjálfari Hauka. . Þá fengu fjölmargir viðurkenningar fyrir frábæran árangur á árinu. Gleðileg nýtt ár! Áfram Haukar
Þeir voru glaðbeittir félagarnir sem hittust í morgun í Guðsveinsstofu til að spá í spilin í getraunum dagsins. Góð stund með góðum félögum og líflegar umræður með kaffi og kruðirí á kantinum. Að loknum spádómum um gengi liða í enska boltanum var rölt út í nýju knatthöllina sem senn verður tekin í notkun. Loksins, loksins, eru…
Knattspyrnufélagið Haukar sendir ykkur öllum bestu óskir um gleðilega jólahátið og farsæld á nýju ári. Þökkum ánægjulegar samverustundir og stuðning á árinu sem er að líða.
Laugardaginn 31. ágúst verður flautað til leiks í getraunaleik Hauka. Skráning og 1. umferð hefst í getraunasalnum á 2. hæð á Ásvöllum. Fólk er hvatt til að mæta og taka þátt í skemmtilegum leik og njóta glæsilegra veitinga. Leikið er frá kl. 10:30 til 12:00. Vegleg verðlaun í boði.
Laugardaginn 26. september verður flautað til leiks í getraunaleik Hauka. Skráning og 1. umferð hefst í getraunasalnum á 2. hæð á Ásvöllum. Fólk er hvatt til að mæta og taka þátt í skemmtilegum leik og njóta glæsilegra veitinga. Leikið er frá kl. 10:30 til 12:00. Vegleg verðlaun í boði.