Fréttir getraunir

Fréttir af getraunastarfi

  • Þeir fiska sem róa

    Meðan getraunaleikur Hauka  var í jólafríi hélt einn þátttakandi  á miðin og landaði 13 réttum. Trúnaður ríkir um einstaka þátttakendur en um umtalsverða vinningsupphæð er að ræða. Leikurinn hefst svo á laugardaginn kl. 10 –  Gamlársdag.

  • Sá stóri í Haukagetraunum

    Það leikur allt í lyndi hjá okkur í Haukagetraunum. Mikill áhugi og stemming ríkir alla laugardaga  í Stefánsstofu.Hér er  frétt af heimasíðu Íslenskra getrauna: „Einn stuðningsmaður Hauka var með 13 rétta  á Sunnudagsseðlinum.  Hann notaði 6 tvítryggingar sem kosta 896 krónur og sigldi örugglega heim 13 réttum sem gefa um 1, 4 milljónir króna.“ Allir…

  • Gleði hjá Getraunum

    Það var mikil spenna og eftirvænting ríkjandi þegar blásið var til leiks í  1. umferð Getraunaleiks Hauka á laugardaginn. Salurinn á 2. hæð þéttsetinn  og létt yfir mannskapnum sem naut stundarinnar yfir léttu morgunverðarborði sem var í boði Félagsráðs.

  • Getraunastarfið 1×2 að byrja

    Kynningarfundur Á laugardaginn er boðað til fundar með áhugasömum tippurum. Á fundinum verður kynnt nýtt leikjaafyrirkomulag og skráning liða fer fram. Framundan er skemmtilegur getraunavetur með glæsilegum verðlaunum. Aðalverðlaun vetrarins verða Evrópuferðir. Mótanefndin hefur fundað stíft undanfarið um skipulag vetrarstarfsins. Nefndina skipa: Ágúst Sindri Karlsson formaður, Jón Björn Skúlason, Heimir Heimisson og Bjarni Hafsteinn Geirsson….

  • Glæsilegt lokahóf 1×2

    Getraunastarfi vetrarins lauk með glæsilegu lokahófi á laugardaginn. Fjöldi var samankominn til að fagna sigurvegurum Vorleiksins. Keppnin sem var 15 umferðir var tvísýn fram á síðasta leik. Góu Haukar fengu flest stig í Lehmansdeildinn eða 242, Haukafeðgar  sigruðu í Bárudeildinni með nokkrum yfirburðum og Góu Haukar unnu Úrvalsdeildina með 45 stigum. Formaður mótanefndar sleit keppninni…

  • 1×2 Getraunir Hauka

    Vetrarstarfi Haukagetrauna lauk um síðustu helgi er 15. umferð var spiluð. Mikil gróska var í starfseminni í vetur en 20 lið tóku þátt í getraunaleiknum þar sem keppt var í 2 riðlum. Sigurvegarar keppninnar verða kynntir á verðlaunahátíð sem haldin verður í maí og verður auglýst síðar. Mótanefndin þakkar samstarfið í vetur og  óskar öllum…

  • Íþróttamiðstöð Hauka við Ásvelli lokar kl. 16:00 í dag vegna veðurs

    Vegna ofsaveðurs sem spáð er í dag og á að koma yfir um kl. 17:00 og þar sem almannavarnir hafa ráðlagt almenningi að vera heima þá hefur verið ákveðið að allar æfingar í íþróttamiðstöð Hauka falla niður í dag, mánudaginn 7. desember. Schenkerhöllin lokar kl. 16:00 í dag vegna veðurs.