Fréttir fótbolti

Fréttir úr fótboltanum

  • Góður útisigur fyrir norðan

    Það voru Hilmarnir tveir í liði Hauka sem sáu um að skora mörk Hauka gegn KA í 4.umferð 1.deildar karla í dag. Haukar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu KA 2-0 með mörkum snemma í fyrri hálfleik. Haukar hafa þar með unnið alla fjóra úti leiki sína á tímabilinu, þrjá í deild og einn í…

  • Haukasigur á útivelli gegn ÍR

    Mörkin létu bíða eftir sér í Neðra-Breiðholtinu í dag þegar ÍR og Haukar mættust í 1.deild karla. Það var ekki fyrr en byrjað var að rigna að mörkin rigndu inn og komu fjögur mörk á síðustu 23 mínútum leiksins. Það voru heimamenn í ÍR sem komust yfir með marki frá Hauki Ólafssyni en Haukar svöruðu…

  • Hilmar Geir mætir á Ásvellina

    Dregið var í 16-liða úrslit Valitors-bikarsins í hádeginu í dag og þar voru Haukar á meðal liða í pottinum. Það fór svo að Haukar og Keflavík drógust gegn hvort öðru og fer leikurinn fram á gervigrasinu á Ásvöllum. Leikirnir fara fram 19. og 20.júní næstkomandi. Það er því ljóst að Haukarinn, Hilmar Geir Eiðsson mun…

  • Haukar áfram í bikarnum

    Grétar Atli Grétarsson og Hilmar Rafn Emilsson skoruðu mörk Hauka í kvöld sem tryggði liðinu í 16-liða úrslit Valitors-bikarsins. Haukar mættu 2.deildarliði KF á Ásvöllum í kvöld og sigraði nokkuð þæginlega 2-0. Haukar og KF byrjuðu leikinn bæði með 11 leikmenn inn á í sitthvoru liðnu en eftir 20 mínútuna leik urðu gestirnir hinsvegar manni…

  • Haukar – KF í Valitor-bikarnum á morgun

    Annað kvöld taka Haukar á móti KF, 2.deildarliði úr Fjallabyggðinni. Um er að ræða leik í 32-liða úrslitum í Valitor-bikar karla. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og fer fram að sjálfsögðu á gervigrasvellinum á Ásvöllum.   Félagið KF, Knattspyrnufélag Fjallabyggðar er nú líklega þekktara undir nafninu, KS/Leiftur en félagið breytti um nafn í vetur og sameinuðst…

  • Tap í fyrsta heimaleik

    Það var blíðskapar veður og vel mætt á leik Hauka og BÍ/Bolungarvíkur í 2.umferð 1.deildar karla í dag en leikurinn var fyrsti leikur Hauka á heimavelli á tímabilinu. Haukar sigruðu Víking Ólafsvík í fyrstu umferð á meðan Vestfirðingarnir töpuðu á heimavelli gegn ÍR-ingum. Til að gera langa sögu stutta þá fóru BÍ/Bolungarvík með sigur af…

  • Fyrsti leikur sumarsins í beinni

    Á morgun laugardag munu Haukar-TV senda beint út frá leik Hauka og BÍ/Bolungarvíkur í 1.deild karla í fótbolta. Leikurinn hefst klukkan 14:00 og mun útsending hefjast 13:50 en þulir leiksins munu rúlla yfir stöðuna og spá í leikinn. Arnar Daði mun lýsa leikjum Hauka í sumar en Arnar Daði er þekkir vel til í herbúðum…

  • Fótboltadagurinn 21. maí á Ásvöllum

    Næstkomandi laugardag, 21. maí, verður heilmikil fótboltahátíð á Ásvöllum. Mikið verður um að vera fyrir Haukafólk á öllum aldri. Meðal annars verður nýja stúkan okkar vígð, landsliðsfólk frá KSÍ kemur í heimsókn og afhendir nýjan DVD disk til allra iðkenda 16 ára og yngri og verðlaunaafhending verður í Getraunaleik Hauka. Síðan fá strákarnir í mfl….

  • Táningurinn tryggði Haukum sigur í fyrsta leik

    Það var ekki slæm meistaraflokks byrjunin hjá hinum unga og efnilega, Björgvini Stefánssyni sem á laugardaginn lék sinn fyrsta deildarleik með meistaraflokki. Leikið var gegn Víking Ólafsvík í Ólafsvík og fór svo að mark Björgvins í seinni hálfleik varð sigurmark Hauka í leiknum.Næsti leikur Hauka er heimaleikur gegn hinum nýliðunum í deildinni, lærisveinum Guðjóns Þórðarssonar…