Fyrsti leikur sumarsins í beinni

Á morgun laugardag munu Haukar-TV senda beint út frá leik Hauka og BÍ/Bolungarvíkur í 1.deild karla í fótbolta. Leikurinn hefst klukkan 14:00 og mun útsending hefjast 13:50 en þulir leiksins munu rúlla yfir stöðuna og spá í leikinn. Arnar Daði mun lýsa leikjum Hauka í sumar en Arnar Daði er þekkir vel til í herbúðum Hauka. Arnar Daði mun svo fá með sér góða gesti með sér í leiki sumarsins.

Haukar-TV stefna að því að senda út alla heimaleiki Hauka í meistaraflokkum karla og kvenna í sumar.

Hægt er að sjá útsendingu Haukar-TV með því að smella hér.

Hér að neðan má sjá dagskrá dagsins:

Dagskrá barna og unglinga:  

Kl. 11.30 Upphitun fyrir knattþrautir
Kl. 11.45 Knattþrautir á grasinu (umsjón Freyr Sverrisson og fleiri þjálfarar deildarinnar)
Kl. 12.45 Tækniskóli KSÍ (landsliðsfólk dreifir DVD diskum til allra iðkenda 16 ára og yngri)
Kl. 13.15 Hádegishressing (hressing er í boði MS og Góu og verður afhent í anddyri Ásvalla)
Kl. 13.45 Haldið út á völl (stúkan vígð)
Kl. 14.00 Haukar – Bí/Bolungarvík

Önnur dagskrá:   

Kl. 12.00 Lokahóf getrauna
Verðlaunaafhending o.fl. verður á 2. hæð Ásvalla
Grillið opið og allir velkomnir
Haukavarningur til sölu

Kl. 13.00 Heimsókn þjálfara mfl. karla
Magnús Gylfason kemur og segir nokkur orð við stuðningsmenn og fer m.a. yfir leikskipulag dagsins

Kl. 13.30 Haldið út á völl
Sr. Kjartan Jónsson mun vígja stúkuna og heilsa upp á leikmenn ásamt formanni Hauka og formanni knattspyrnudeildar

 Kl. 14.00 Haukar – Bí/Bolungarvík

Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…