Fréttir fótbolti

Fréttir úr fótboltanum

  • Karen og Haukur íþróttamenn Hauka 2014, Patrekur þjálfari ársins

    Karen Helga Díönudóttir og Haukur Óskarsson voru útnefnd íþróttakona og íþróttakarl Hauka fyrir árið 2014. Þá var Patrekur Jóhannesson kjörinn þjálfari ársins. Eftirfarandi eru umsagnir þau sem fylgdu kjörinu: Karen Helga Díönudóttir handknattleikskona hefur leikið allan sinn feril hjá Haukum. Hún á að baki fjölda landsleikja með yngri landsliðum. Hún átti mjög gott tímabil síðasta…

  • Haukar eiga 113 landsliðsmenn

    Ræða Formanns Hauka á viðurkenningahátíð Hauka Kæru Haukamenn gleðilega hátíð! Áður en viðurkenningahátíð Hauka hefst vil ég minnast mikils Haukamanns Lofts Eyjólfssonar sem lést í gærmorgun. Loftur var á sínum yngri árum öflugur knattspyrnumaður og mikill markaskorari fyrir Hauka. Hann verður stjórnarmaður í knattspyrnudeild 1980 og síðan formaður 1985 – 87. Hann sat í aðalstjórn…

  • Látinn er Loftur Eyjólfsson

    Okkar ágæti félagi og Haukamaður Loftur Eyjólfsson lést í morgun á hjúkrunarheimilinu Sólvangi, 63 ára að aldri. Loftur hefur um árabil átt við langvarandi sjúkdóm að stríða. Ekki verður ferill hans í félaginu rakinn hér en fáir eiga jafn langan og farsælan feril sem Loftur á á íþróttasviðinu og við hin ýmsu stjórnunarstörf. Félagið sendir…

  • Viðurkenningarhátíð Hauka á Gamlársdag

    Á gamlársdag heiðra Haukar sitt besta íþróttafólk í athöfn sem fram fer í hátíðarsalnum á Ásvöllum og hefst kl. 12:30. Þar verður lýst kjöri á Íþróttakonu, íþróttakarli og besta þjálfara ársins. Auk þess verða kynnt þau ungmenni sem tekið hafa þátt í verkefnum hinna ýmsu landsliða Íslands. Sitthvað fleira verður á dagskránni. Í lok býður…

  • Árgangamót Hauka 2014

    Nú er komið að því!!! Ágangamótið hefst stundvíslega kl. 18:00 í kvöld.  Fótboltinn byrjar kl. 18:15 þannig að menn þurfa að mæta snemma.  Liðstjórar eiga að mæta 17:45. Allir velkomnir á skemmtileg kvöld, með léttum veitingum.  Þátttökugjald er kr. 2.000 kr. en þeir sem eru 30 ára og yngri fá sérstakan 50%  ungmennaafslátt og greiða kr.1.000. …

  • Liðsstyrkur til kvennafótboltans

    Haukar fá liðsstyrk fyrir komandi tímabil í 1. deild kvenna. Knattspyrnudeild Hauka hefur gert samning við tvo leikmenn sem koma frá ÍR og munu styrkja 1. deildar lið Hauka töluvert í baráttunni sem er framundan. Þórdís Sara Þórðardóttir og Hafdís Erla Valdimarsdóttir hafa samið við Hauka fyrir komandi átök. Þórdís Sara er framherji en hún…

  • Skemmtikvöld

    Meistaraflokkur karla í knattspyrnu býður öllum Haukafélögum nær og fjær að taka smá upplyftingu frá skammdeginu á skemmtikvöldi sem verður föstudaginn 14. nóvember n.k. og hefst kl. 20:00.   Þetta er tilvalið tækifæri til að mæta á hverfispöbbinn og hitta félagana.  Hér er að sjálfsögðu átt við félagsheimili Hauka á Ásvöllum, nánar tiltekið veislusalur.  …

  • Nýir Þjálfarar Meistaraflokks karla í knattspyrnu.

    Haukar gengu í dag frá ráðningu Luka Kostic sem þjálfara meistaraflokks karla í knattspyrnu til næstu þriggja ára.  Luka Kostic hefur undanfarin ár þjálfað yngri flokka Hauka með góðum árangri.  Hann  þekkir því vel til á Ásvöllum og vænta Haukar mikils af honum  við þjálfun meistaraflokks félagsins. Þá hefur Þórhallur Dan Jóhannsson verið ráðinn aðstoðarþjálfari…

  • Síðasti heimaleikurinn á Laugardag

    Þá er komið að síðasta heimaleik strákanna og jafnframt síðasta leik þeirra á tímabilinu. Núna fáum við Víking frá Ólafsvík í heimsókn.Fyrir síðustu umferðina eru strákarnir okkar í 8.sæti með 29 stig en Víkingur er í 3.sæti með 36 stig.Í síðasta leik sigruðu Haukar liðið sem að er í öðru sæti deildarinnar Í.A. á útivelli 0-2…