Fréttir fótbolti

Fréttir úr fótboltanum

  • Æfingar 5. flokks kvenna í vetur

    5.flokkur kvenna mun æfa á mánudögum í Risanum á Kaplakrika kl. 18:00-19:00, en sá æfingatími tekur gildi 1. október 2007. Æfingar frá og með 3. september eru: miðvikudagar 16:00-17:00 úti á Ásvöllum og föstudagar 16:00-17:00 einnig úti á Ásvöllum. Allar frekari upplýsingar um flokkinn er að finna hér: Krækja á bloggsíðu flokksins

  • Æfingar 6. flokks kvenna í vetur

    6.flokkur kvenna mun æfa á mánudögum í Risanum á Kaplakrika kl. 17:00-18:00, en sá æfingatími tekur gildi 1. október 2007. Æfingar frá og með 3. september eru: þriðjudagar 17:00-18:00 úti á Ásvöllum og fimmtudagar 17:00-18:00 einnig úti á Ásvöllum. Allar upplýsingar um flokkinn er að finna hér: Krækja á bloggsíðu flokksins

  • Breyting á 8.flokki barna

    Í vetur verður sá hátturinn hafður á að elsta árið í fyrrum 8.flokknum, þeas. elsti árgangurinn í leikskóla, æfir með 7.flokki sem gengur nú undir heitinu „Íþróttaskóli Hauka“. Sjá æfingatíma 7.flokks kvenna og 7.flokks karla hér á síðunni. Árgangar 2003 og yngri fara í „Íþróttaleikskóla Hauka“ (áður Leikjaskóli barnanna) sem verður áfram á laugardagsmorgnum og…

  • Æfingar 7.flokks karla

    7.flokkur karla (árgangar 2000 til 2002) mun æfa á þriðjudögum kl. 17:00-18:00 úti á gervigrasinu á Ásvöllum og á fimmtudögum inni á Ásvöllum. Allar nánari upplýsingar um flokkinn er að finna á bloggsíðunni: Smelltu hér til að fara á 7.flokks karla bloggið

  • Haukar aftur í 1.deild

    Þá er það orðið loksins ljóst að Haukar munu spila aftur í 1.deildinni á næsta tímabili, en það var ljóst eftir stórsigur gegn Sindra á heimavelli í gær 7-1. Veðrið á Ásvöllum var ekki uppá marga fiska á meðan leikurinn stóð en Haukar spiluðu á köflum glimrandi knattspyrnu. Byrjunarlið Hauka var þannig skipað; Í Markinu…

  • Uppskeruhátíðin

    Við minnum aftur á Uppskeruhátíð yngri flokkanna sem hefst á morgun kl. 14:00 á Ásvöllum. Mælst er til að allir foreldrar komi með kökur eða annað bakkelsi í Veislusalinn áður en hátíðin hefst í íþróttasalnum. Kaffi fyrir alla að viðurkenningunum loknum.

  • Leikur á laugardaginn

    Stutt & Laggott (Samtal) Hann; Heyrðu, ætlar þú ekki að skella þér á leikinn á laugardaginn ? Hún; Hvaða leik ? Hann; Nú auðvitað Haukar – Sindri í 2.deildinni Hún; Jú, auðvitað, er hann ekki á laugardaginn klukkan 14;00 á Ásvöllum ? Hann; Mikið rétt & vissir þú að með sigri Hauka & hagstæðum úrslitum…

  • 5.flokkur karla í 8-liða úrslit

    5.flokkur karla heldur áfram sigurför sinni á knattspyrnuvellinum. Í dag var leikið í undanúrslitariðlunum í Íslandsmótinu og þar báru Hauka sigurorð af FH og Keflavík í bæði A-liðum og B-liðum. Það þýðir að Haukar mæta Breiðablik í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins á morgun í Ásgarði (heimavöllur Stjörnunnar). B-liðið spilar klukkan 10:00 og A-liðið kl. 11:00. Við…