Fréttir fótbolti

Fréttir úr fótboltanum

  • Sigur hjá 3.flokki

    Annar sigur 3.flokks karla er nú orðin staðreynd. Fyrir leikinn voru Haukar með einungis 4 stig, sigur gegn ÍBV á heimavelli og jafntefli gegn Val einnig á heimavelli. En það má bæta því við að í átta af tólf leikjum í sumar voru strákarnir búnir að halda markinu hreinu í fyrri hálfleik og því má…

  • Síðustu leikir Hauka í 2.deildinni

    Lokaleikir Hauka í deildinni eru gífurlega mikilvægir. Haukar eiga fjóra leiki eftir í deildinni, tvo útileiki og tvo heimaleiki. Næsti leikur Hauka er á laugardaginn 25. ágúst en þá fara Haukar í heimsókn á Grenivík og spila á Grenivíkurvelli gegn Magna. Magnamenn eru sem stendur í neðsta sæti deildarinnar með 8 stig. Þeir hafa fengið…

  • Uppskeruhátíð og æfingatöflur vetrarins

    Sunnudaginn 2. september verður Uppskeruhátíð Knattspyrnudeildarinnar og Íþróttaskóla Hauka haldin á Ásvöllum kl. 14. Hátíðin verður einnig notuð til að kynna vetrarstarf allra deildanna hjá Haukum og því eru allir nýir sem gamlir haukaiðkendur úr öllum deildum velkomnir. Allir þeir sem stunduðu Íþróttaskóla Hauka eru sérstaklega hvattir til þess að koma og taka á móti…

  • Leikur í kvöld

    Meistaraflokkur kvenna spilar í kvöld sinn næstsíðasta leik í 1. deildinni þetta sumarið leikurinn er á móti toppliði HK/Víkings og er hann klukkan 18:30 á Víkingsvelli. Ég hvet sem flesta Haukamenn til að mæta á leikinn og bera augum fyrsta A-landsliðsmann Hauka augum sem og aðrar stelpur í Hauka liðinu. Haukar eru sem stendur í…

  • Sara Björk í A-landsliðið

    Í dag var Sara Björk Gunnarsdóttir leikmaður meistaraflokks kvenna valin í A – landslið kvenna. En Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari kvenna tilkynnti 18 manna leikmannahóp sinn sem mætir Slóveníu ytra 26.ágúst, en leikurinn er í undankeppni Evrópumótsins 2009. Sara Björk er eini nýliðinn í hópnum, en hún hefur staðið sig mjög vel í sumar eftir…

  • 6.flokkur lentu í 2.sæti

    6.flokkur karla náði mjög góðum árangri um helgina er leikið var í 8 – liða úrslitum Íslandsmótsins. Í gær léku Haukar í riðli með FH2, ÍBV & Njarðvík. Haukar sigruðu fyrsta leik sinn örugglega gegn FH2, 6-2. Næstu mótherjar voru Eyjamenn, en sá leikur endaði með 8-1 sigri Hauka. Fyrir síðasta leikinn voru þeir búnir…

  • Haukasigur fyrir austan

    Í gær áttu Haukamenn kappi við Hött frá Egilsstöðum. Samkvæmt heimildum sem ég fékk, voru Haukastrákarnir mun betri og klaufar að sigra ekki leikinn stærra, en leikurinn endaði 1-0, með marki frá Hilmari Geir Eiðssyni. Önnur úrslit úr 14.umferð voru þessi; ÍH 0 – ÍR 0 Völsungur 0 – Selfoss 2 KS/Leiftur 5 – Sindri…

  • Úrtökumót KSÍ um helgina

    Á morgun munu tveir Hauka strákar úr 3.flokki fara á úrtökumót KSÍ sem haldið er á Laugarvatni. Þetta eru þeir Arnar Daði Arnarsson og Marteinn Gauti Andrason. Arnar Daði er markmaður og Marteinn Gauti getur leikið bæði á kanti og einnig sem framherji, en eins og kannski einhverjir vita er Marteinn Gauti sonur Andra Marteinssonar…

  • Aron Freyr á reynslu hjá Vejle

    Aron Freyr Eiríksson ungur og efnilegur leikmaður 3.flokks Hauka fór á reynslu til Vejle í Danmörku laugardaginn 28.júlí og var þar í 6 daga. Hann æfði með U-17 og U-18 ára liði félagsins en hann kom svo inná síðasta hálftímann í æfingarleik með varaliði félagsins gegn varaliði Silkeborgar en Íslendingarnir í liði Silkeborgar Hörður Sveinsson…