Bréf vegna Blönduós

Ég sendi hér bréf á tölvutæku formi fyrir þá sem ekki komust á fundinn og fyrir þá sem eru búnir að týna bréfinu sem var dreift þar:)

Smábæjarleikar á Blönduósi 23. – 25. Júní 2006

Nú er komið að Smábæjarleikum KB-Banka á Blönduósi. Mótið verður haldið dagana 23. -25. júní 2006. Kostnaður vegna ferðarinnar er 7.900kr á hvern dreng. Innifalið í því er allur kostnaður, mótsgjald, gisting, matur og nesti.

Æskilegt er að allir verði komnir á Blönduós að kvöldi föstudagsins 23. júní um klukkan 20 og munu drengirnir gista saman 2 nætur. Keppni hefst svo að morgni laugardagsins 24.

Við höfum aðeins haft eina fjáröflun og tókst hún ágætlega, og því eiga þeir drengir er tóku þátt í henni einhvern sjóð sér til frádráttar.

Greiðsla þarf að hafa borist mánudaginn 19. júni á eftirfarandi Bankareikning.

Reikningur 6.flokks Hauka

0140-26-43959

kennitala 700387-2839

Nauðsynlegt er að leggja inn á þennan reikning. Ef fólk einhverra hluta vegna á ekki hægt um vik að greiða beint inn á reikninginn þarf að hafa samband við einhvern hjá foreldrastjórn varðandi greiðsluna á gjaldinu. Nú þegar hafa 3 fararstjórar gefið sig fram og það ætti að nægja með þjálfurum, en að sjálfsögðu er öll aðstoð vel þegin meðan á mótinu stendur.

Drengirnir gista í skólahúsnæði á Blönduósi og þurfa að hafa með sér dýnu, kodda og svefnpoka (sjá nánar gátlista). Þeir eru algjörlega á ábyrgð fararstjóra en þátttaka foreldra í skólastofunni er vel þegin, þ.e. að hjálpa fararstjórum að smyrja brauð, taka til, útbúa nesti o.s.frv. þegar þess er þörf. Foreldrar gista almennt í tjöldum á tjaldstæði ekki langt frá.

Til þess er mælst að foreldrar séu ekki að taka drengina burt með sér meðan á mótinu stendur.

Við foreldrarnir erum þarna til að skemmta okkur og hvetja liðsheild, þ.e. HAUKA (ekki ákveðna drengi). Foreldrar/forráðamenn sjá sjálfir um að koma drengjunum sínum heim eftir verðlaunaafhendingu á sunnudag.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Áfram Haukar!

GÁTLISTI FYRIR 6. FLOKK HAUKA

HAUKA UTANYFIRGALLI

HAUKA STUTTBUXUR

HAUKASOKKAR

VINDGALLI / REGNGALLI / GERVIGRASGALLI

LEGGHLÍFAR

FÓTBOLTASKÓR

AUKA SKÓR

SUNDFÖT

HANDKLÆÐI

NÆRFÖT

STUTTERMABOLIR

SOKKAR TIL SKIPTANA

PEYSA

ÚLPA (HAUKA EF Á)

VETTLINGAR / HÚFA

NÁTTFÖT

TANNBURSTI / TANNKREM

SVEFNPOKI

KODDI

DÝNA / VINDSÆNG

AFÞREYINGAREFNI (TÖLVUSPIL, VASADISKÓ, SPIL EÐA BÓK A.M.K. EKKERT MEÐ MIKLUM HÁVAÐA).

GÓÐA SKAPIÐ

ATHUGIÐ AÐ MERKJA VEL ÖLL FÖT, HLUTI OG ALLT SEM

TILHEYRIR DRENGNUM.

BANNAÐ ER AÐ KOMA MEÐ VASAPENING EÐA NAMMI.

Ath. Allar Hummel vörur sem Haukar eru í fást keyptar í Fjölsport í Firði.