Bikarleikur á morgun, Haukar – Fjarðabyggð

HaukarÁ morgun, Þjóðhátíðardag Íslendinga mætast Haukar og Fjarðabyggð í 32-liða úrslitum Visabikars karla á Ásvöllum. Leikurinn hefst klukkan 12:30.

 

Bæði þessi lið eru í 1.deildinni og hafa byrjað mótið nokkuð vel, Haukar í 2.sæti með 13 stig og Fjarðabyggð í 5.sæti með 10 stig. Þessi sömu lið mættust á samavelli í 2.umferðinni og þar fóru Haukar með sigur af hólmi 3-1 eftir að Fjarðabyggð hafi verið 0-1 yfir í hálfleik.

 

Það má því búast við hörkuleik á morgun og hvetjum við alla til að fjölmenna á leikinn og byrja Þjóðhátíðardaginn á Ásvöllum.