Bikarúrslit: Unglingaflokkur kvenna spilar kl. 16:00

Stelpurnar í unglingaflokki spila til úrslita í bikarkeppni unglingaflokks kvenna í körfubolta í dag. Að þessu sinni er úrslitahelgin í Keflavík og hefst leikur þeirra kl. 16:00.

Andstæðingar Hauka eru KR en þær eru ríkjandi bikarmeistarar í unglingaflokki.

Haukastelpur hafa verið sigursælar í bikarkeppninni undanfarin ár en unglingaflokkur Hauka hefur unnið fjóra af síðustu fimm bikarmeistaratitlum í þessum flokki.

Heimasíðan hvetur alla til að mæta í Toyota-höllina í dag og hvetja stelpurnar til dáða.

Áfram Haukar.

Mynd: María Lind Sigurðardóttir og vinkonur hennar í unglingaflokki þurfa á stuðningi að halda í dagstefan@haukar.is