Búið að velja liðin fyrir NM

Margrét Rósa Hálfdanardóttir er að fara á sitt fjórða Norðurlandamót - mynd: Karfan.isBúið er að velja landsliðshópana sem halda á Norðurlandamót yngri landsliða í körfubolta sem fer fram í Solna í Svíþjóð. Keppt er í U16 og U18 karla og kvenna og eiga Haukar fjóra fulltrúa í þremur liðum.

Í U18 kvenna eru Margrét Rósa Hálfdanardóttir og Lovísa Björt Henningsdóttir.

Í U16 kvenna er Sólrún Inga Gísaldóttir.

Í U16 karla er Kári Jónsson.

Heimasíðan óskar þeim til hamingju.

Sjá öll liðin á vef Körfuknattleikssambandsins