Árni Stefán ráðinn þjálfari kvennaliðs Hauka á næstu leiktíð

Árni Stefán ráðinn þjálfari kvennaliðs Hauka á næstu leiktíð

Árni Stefán Guðjónsson tekur við þjálfun kvennaliðs Hauka fyrir næstu leiktíð og er samningurinn til tveggja ára.
Hann mun taka við liðinu eftir leiktíðina en Elías Már Halldórsson lætur þá af störfum og tekur við karla liði HK.

Árni Stefán er 32 ára gamall og hefur hann þjálfað hjá FH frá árinu 2004. Hann var aðst. þjálfari m.fl. karla 2014 – 2018.

Við bjóðum Árna Stefán hjartanlega velkominn í Haukafjölskylduna!