Uppskeruhátíð og ný æfingatafla

Laugardaginn 30. ágúst verður uppskeruhátíð Knattspyrnudeildar Hauka haldin á Ásvöllum kl. 13:00. Allir iðkendur, eða foreldrar þeirram, eiga að koma með eina köku eða sambærilegt bakkelsi kl. 12:45 í Veislusalinn þar sem kaffið fer fram eftir hátíðina. Það er algjör skyldumæting á uppskeruhátíðina og iðkendur hvattir til að taka mömmu og pabba með sér.

Fylgist með á bloggsíðum hvers flokks fyrir sig hvernig æfingatímarnir verða í vikunni 25.-31.ágúst, en fimmtudagurinn 21. ágúst er síðasti dagurinn sem

Ný æfingatafla tekur svo gildi mánudaginn 1. september en flestir yngri flokkarnir æfa tvisvar í viku í september og unglingaflokkarnir þrisvar og svo bætist 1-2 æfingar við í október.

Staðfestir æfingartímar hjá hverjum flokki munu liggja fyrir hér á heimasíðunni í vikunni 25.-31.ágúst.