Nýr þjálfari meistaraflokks kvenna
Í fyrradag skrifaði hinn gamal reyndi leikmaður og þjálfari Guðmundur Magnússon undir 3ja ára saming við Hauka um þjálfun meistaraflokks-,2. & 3.flokks kvenna.
Honum til aðstoðar verður hinn síkáti Ómar Freyr Rafnsson.
Guðmundur er okkar Haukamönnum vel þekktur enda hefur hann spilað yfir 60 meistaraflokksleiki fyrir Hauka. Síðustu ár hefur Guðmundur verið fyrir austan að spila hjá Hugin á Seyðisfirði.
Í fyrra sumar þjálfaði Guðmundur meistaraflokk kvenna í Breiðablik.
Við bjóðum Guðmundi velkomin aftur til starfa hjá Haukum.
