Hilmar Geir Eiðsson leikmaður Hauka hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Hilmar skrifaði undir samning sem gildir til ársins 2011.
Hilmar Geir sem er fæddur árið 1985 er uppalinn hjá Haukum og því Haukamaður í húð og hár.
Hilmar Geir spilaði 16 leiki fyrir Hauka í 2.deildinni í sumar og skoraði í þeim leikjum 7 mörk.
Hilmar Geir á hefur spilað 67 leiki með Haukum í meistaraflokki frá upphafi í þeim leikjum skorað 14 mörk.