Jaft í lokaleiknum

Það var kalt í veðri þegar dómari leiksins flautaði leikinn á. Fyrir leikinn voru Haukar þega búnir að tryggja sér 1.sætið en með hagstæðum úrslitum úr öðrum leikjum og ÍR sigur hefðu ÍR-ingar átt séns að fara upp.

Byrjunarlið Hauka var skipað ellefu leikmönnum og allir eiga þeir það sameiginlegt að bera nöfn. Nöfn þeirra eru eftirfarandi;

Ágúst Garðarsson (Markinu)

Jónas Bjarnason (Hægri bakverði)

Goran Lukic (Miðjunni)

Edilon Hreinsson (Vinstri Kanti)

Óli Jón Kristinson (Miðverði)

Þórhallur Dan Jóhannsson(C) (Miðverði)

Davíð Ellertsson (Vinstri Bakverði)

Kristján Ómar Björnsson (Miðjunni)

Ásgeir Þór Ingólfsson (Framherji)

Hilmar Geir Eiðsson (Hægri Kanti)

Árni Hjörvar Hilmarsson (Framherji)

Varamennirnir í leiknum voru fimm talsins;

Amir Mehicca

Davíð Jónsson

Úlfar Pálsson

Hilmar Rafn Emilsson

Garðar Geirsson

Þrír þeirra komu inná, þeir Davíð Jónsson, Úlfar Pálsson og Hilmar Rafn Emilsson.

Leikurinn byrjaði frekar rólega í rokinu í Hafnarfirði, ÍR sóttu með vindinn í bakið og var erfitt að halda boltanum inná vellinum. Fyrsta mark leiksins skoraði Davíð Ellertsson varnarmaður Hauka en því miður fyrir hann og Hauka var það í hans eigið mark, en ÍR-ingar áttu aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi heimamanna og barst boltinn inní teig og í Davíð og inn.

Það tók heimamenn einungis þrjár mínútur að jafna en þar var að verki Kristján Ómar Björnsson sem skoraði laglegt mark. Staðan orðin 1-1.

Gleðin var stutt hjá Haukum því tveim mínútum síðar skoraði Erlingur Guðmundsson eftir að hafa sloppið einn inn fyrir. Og ÍR-ingar voru ekki hættir því tveim mínútum síðar eða á 27.mínútu skoruðu þeir þriðja mark sitt er Ásbjörn Jónsson geystist upp hægri kantinn og gaf fyrir þar sem Elías Ingi Árnason var einn og óvaldaður og skallaði boltann í netið. 1-3 staðan orðin. Eftir þetta róaðist leikurinn heldur betur og fengu bæði liðin nokkur færi án þess að skapa sér hættuleg marktækifæri. Staðan því í hálfleik vænleg fyrir gestina, 1-3.

Í seinni hálfleik mættu Haukar mun sterkari til leiks og strax á fyrstu mínútu síðari hálfleiks átti Óli Jón Kristinsson skalla að marki ÍR en Ari Gíslason varði á línu.

Á 50. mínútu skoruðu varamaðurinn Hilmar Rafn Emilsson eftir fyrirgjöf frá Úlfari Hrafn Pálssyni. Og Haukar héldu áfram og skoruðu á 57.mínútu er Goran Lukic skallaði boltann inn eftir fyrirgjöf frá Ásgeiri Ingólfssyni. Haukar héldu áfram að sækja og mínútu síðar átti Davíð Ellertsson skalla í slá. Og áfram héldu Haukar að sækja, fyrst átti Óli Jón skalla rétt framhjá, Hilmar Emilsson með fínt skot sem fór hárfínt framhjá.

Síðan á 70.mínútu hitti Úlfar Hrafn Pálson boltann mjög vel og skot hans sem var langt utan af velli í slánna og upp í loft, þarna voru ÍR-ingar stálheppnir.

Síðustu mínúturnar sóttu ÍR-ingar mikið og áttu nokkur góð færi, Elías Ingi slapp einn innfyrir vörn Hauka en Ágúst Garðarsson varði mjög vel. Og undir blálokinn átti Erlingur Guðmundsson ágætt skot en boltinn í hliðarnetið.

Eftir þetta flautaði ágætur dómari leiksins leikinn af og loka staðan 3-3.

Svo er bara að bíða spennt eftir næsta tímabili!

ÁFRAM HAUKAR!