Faxin/Haust

Í gærkveldi miðvikudag fór fram leikur í Faxaflóamóti þar sem áttust við 3 flokkur kvenna Haukar-GVS.

Leikurinn fór rólega af stað hjá okkar stelpum en þess hraðar hjá andstæðingum sem skoruðu að ég held fjögur mörk gegn einu í fyrri hálfleik.

En í þeim síðari tókst okkar stelpum að bíta frá sér og sína hvað í þeim bjó en að lokum urðu úrslitin 5-2 fyrir GVS.

Dómari leiksins var Venni og honum til aðstoðar voru Valborg Óskarsdóttir og Páll Eggertsson.

Næsti leikur hjá stelpunum verður miðvikudaginn 23 nóv kl 20.00