Báðir Meistaraflokkar Hauka hafa verið við æfingar í Albufeira í Portúgal síðan á þriðjudaginn sl. og halda heim núna á þriðjudaginn. Veðrið hefur að mestu leikið við hópinn og eru vellir og aðstæður til knattspyrnuiðkunar allar hinar ágætustu.
Karlarnir léku við 3.deildarliðið Númi og endaði leikurinn í með 3-0 sigri Hauka í frekar slökum leik. Á mánudaginn leikur liðið við Huginn en þar er fyrir að finna nokkra gamla Haukafélaga, Sveitamanninn (Gummi Magg), Bangsann (Ómar Freyr), Bómulinn (Binni Gest) og öndina (Andri Sveins), og því verðuð án efa um hörku leik að ræða.
Meistarflokkur kvenna spilaði þá við Stjörnuna og stóð lengi vel í hárinu á úrvalsdeildarliðinu, sem reyndist þó sterkari aðilinn í seinni hálfleik. Leiknum lauk með 5-3 sigri Stjörnunnar eftir að staðan hafði verið 2-2 í hálfleik.