Rey-cup
Haukar 3. flokkur kvenna munu spila til úrslita á sunnudag eftir stórsigur í sínum riðli. Ekki er en ljóst hverjir mótherjarnir verða. Stelpurnar í 4. flokk eru líka búnar að standa sig vel og munu bæði A og B liðið spila til úrslita á sunnudag. Stelpurnar í 4. A munu spila gegn Aftureldingu en fyrri leikur þessara liða í mótinu endaði 2 0 fyrir Hauka. B liðið spilar til úrslita gegn Keflavík en fyrri leikur þeirra á milli fór 3 1 fyrir Hauka. Sá möguleiki er nú fyrir hendi að öll liðin sem Haukar sendu á Rey-cup undir stjórn Magneu sigri í sínum flokkum. Glæsilegur árangur hjá Haukastelpum.
Rey-Cup
