Haukar – Fjölnismenn hinir síðari 0-2
Haukar tóku í kvöld á móti Fjölnismönnum frá Grafarvogi. Fyrri leik liðanna í sumar lyktaði með stórsigri okkar manna 4-1 og voru margir sem vonuðust til að drengirnir myndu endurtaka þann leik eftir glæsilegan sigur í síðustu umferð. Þó var vitað fyrirfram að á brattann yrði að sækja þar sem nýliðarnir hafa bætt verulega við lið sitt frá því liðin mættust síðast.
Liðið í kvöld: Jöri; Davíð (Sævar), Danni, Darri, Óli Jón; Edilon, Kristján Ómar, Goran, Gummi Magg (Pétur); Ómar Karl, Arnar Steinn (Zoran).
Leikurinn í kvöld fór frekar rólega af stað, liðin þreifuðu fyrir sér og gáfu fá færi á sér. Gestirnir voru sterkari aðilinn lengstum í fyrri hálfleik án þess þó að skapa sér einhver færi. Okkar menn sóttu þó aðeins í sig veðrið þegar líða tók á fyrri hálfleik en vantaði þó herslumuninn á að liðið næði að skapa einhver færi.
Fyrsta mark leiksins kom á 40.mínútu og var það í rauninni fyrsta og eina alvöru færi fyrri hálfleiks. Þar voru Fjölnismenn að verki. Eftir mikinn klaufagang í teignum stóð einn leikmaður gestanna nánast á marklínu og potaði boltanum í netið.
Staðan í hálfleik 0-1
Í hálfleik gerði Daði þá breytingu á liðinu að taka Davíð útaf og setja Sævar inná í staðinn. Þessi breyting virtist virka vel á liðið, menn virkuðu mun frískari og broddurinn í sókninni varð meiri. Þó gekk mönnum ennþá erfiðlega að búa sér til almennileg færi og að auki höfðu gestirnir nánast plantað sér inni í sínum eigin vítateig og hugðust greinilega varðveita þá forystu sem þeir höfðu.
Hættulegustu færin komu þegar Danni átti skalla yfir markið eftir hornspyrnu og eins átti Zoran gott skot sem fór rétt yfir.
Gestirnir lágu eins og áður sagði mjög aftarlega og beittu skyndisóknum. Úr einni slíkri fengu þeir eitt allra besta færi leiksins en Jöri bjargaði meistaralega í horn.
Það var svo ekki fyrr en komið var framyfir venjulegan leiktíma að annað mark leiksins leit dagsins ljós. Eftir nokkuð þunga sókn okkar manna náðu gestirnir boltanum og löng sending fór aftur fyrir vörnina og sóknarmaður Fjölnis sem var kominn einn innfyrir átti ekki í neinum vandræðum með að setja boltann í netið, 0-2 fyrir gestina og alltof lítill tími eftir til að bjarga málunum.
Það var grátlegt að liði skyldi tapa leiknum í kvöld því liðið var síst lakari aðilinn í leiknum. Það sem er kannski ennþá grátlegra er það að liðið var í kvöld að spila sjötta heimaleikinn í sumar og í þessum sex leikjum hafa einungis fengist tvö stig.
Ljósi punkturinn er þó ennþá sá að ekki er langt í næstu lið fyrir ofan og ennþá vel hægt að bjarga málunum, en til þess að það gerist verður liðið að fara að hala inn fleiri stig, og þá sérstaklega á heimavelli.
Næsti leikur verður síður en svo auðveldur en þá mætum við bræðrafélagi okkar, Val, á Hlíðarenda, en Valsmenn eru á toppnum eftir leiki þessarar umferðar. Leikurinn fer fram fimmtudaginn 29.júlí. Þangað verða allir Haukamenn að mæta og styðja við bakið á liðinu í þeim erfiða leik.
Áfram Haukar!
