Stórleikur á Ásvöllum í kvöld kl. 20:00
Í kvöld kl. 20:00 mætast Haukar og Milton Keynes Dons FC sem áður hétu Wimbledon í leik á Ásvöllum. Knattspyrnudeildin hefur lagt metnað í það að hafa umgjörð þessa leiks sem besta og vonast til þess að sjá sem flesta á leiknum. Aðgangur verður ókeypist fyrir börn.
Þess má geta að framkvæmdastjóri MK Dons, þjálfarar og leikmenn liðsins hafa lýst yfir mikilli ánægju með dvöl sína hjá okkur Haukum. Þeir hafa æft tvisvar á dag og eru sannfærðir um að þessi ferð þeirra til Íslands eigi eftir að skila sér vel. Það hefur vakið athygli bæði hérlendis og í Englandi að enskt atvinnumannalið skuli hefja undirbúning sinn fyrir komandi tímabil á Íslandi.
Áfram Haukar og fjölmennum á völlinn í kvöld.
